Bíó og sjónvarp

Tom Hardy hættur við Everest

Tom Hardy er hættur við að fara með hlutverk í kvikmynd um fjallgöngumanninn George Mallory.
Tom Hardy er hættur við að fara með hlutverk í kvikmynd um fjallgöngumanninn George Mallory. Nordicphotos/getty
Tvær kvikmyndir sem fjalla um baráttu manns við Everst, hæsta fjall veraldar, eru nú í bígerð. Önnur kvikmyndin er í leikstjórn Baltasars Kormáks og framleidd af kvikmyndaverinu Universal, hin er framleidd af Sony og er leikstýrt af Doug Liman, leikstjóra The Bourne Identity.

Síðarnefnda myndin fjallar um ævintýri breska fjallgöngumannsins George Mallory, sem lést árið 1924, og átti breski leikarinn Tom Hardy að fara með hlutverk Mallorys. Hardy getur ekki tekið að sér hlutverkið vegna anna og þykir líklegt að Benedict Cumberbatch komi í hans stað. Aðrir sem koma til greina í hlutverkið eru Joel Kinnaman, James McAvoy, Tom Hiddleston, Henry Cavill, Luke Evans og Jim Sturgess.

Kvikmynd Baltasars segir frá því þegar átta fjallgöngumenn létust í byl á fjallinu í maí árið 2006. Leikstjórinn dvaldi í Nepal í byrjun mánaðarins í leit að tökustöðum, en tökur á myndinni eiga að hefjast í næsta mánuði samkvæmt frétt Deadline.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.