Bíó og sjónvarp

Nýtt plakat fyrir Noah

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Búið er að afhjúpa nýtt alþjóðlegt plakat fyrir kvikmyndina Noah sem leikstýrt er af Darren Aronofsky.

Myndin verður frumsýnd vestan hafs 28. mars næstkomandi og leikur Russell Crowe sjálfan Noah sem byggir sér örk.

Stór hluti af kvikmyndinni var tekinn hér á landi sumarið 2012, en í öðrum burðarhlutverkum eru Jennifer Connelly, Emma Watson og Anthony Hopkins. Auk þeirra léku Íslendingarnir Jóhannes Haukur Jóhannesson, Arnar Dan Kristjánsson, Bjarni Kristjánsson og Tómas Þórhallur Guðmundsson lítil hlutverk í myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.