Bíó og sjónvarp

Keira leikur í stórmynd Baltasars

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Keira Knightley er búin að landa hlutverki í stórmynd Baltasars Kormáks, Everest. Aðrir leikarar í myndinni eru til að mynda Josh Brolin og Jake Gyllenhaal en Keira leikur eiginkonu Jason Clarke sem túlkar fjallgöngukappann Rob Hall.

Myndin er meðal annars tekin upp í Pinewood Studios, í Englandi, Nepal og ítölsku Ölpunum en myndin er byggð á bókinni Into Thin Air eftir rithöfundinn og fjallagarpinn Jon Krakauer. Segir hún frá hörmungaratburðum sem áttu sér stað á Everestfjalli árið 1996 þar sem átta fjallgöngumenn fórust.

Baltasar sagði frá því í Fréttablaðinu fyrir stuttu að myndin væri langerfiðasta verkefni sem hann hefði tekið að sér á ferlinum en tökuliðið á vegum hans var í tökum á landslagi á Everest þegar hinn mikli harmleikur varð á Everest og minnst þrettán manneskjur týndu lífi í snjóflóði.

„Við vorum að taka upp þegar þetta hræðilega slys átti sér stað og það minnir auðvitað á hversu hættulegt þetta er. Slysið kemur auðvitað nálægt raunveruleika myndarinnar, þar sem hún fjallar um miklar hörmungar sem áttu sér stað,“ segir Baltasar.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.