Skoðun

Þegar þekkingarleysið réði ríkjum

Gauti Skúlason skrifar
Kveikjan að þessum pistli var sigur klæðskiptingsins Thomas Neuwirth í gervi Conchita Wurst í Eurovison í byrujun maí. Undirritaður telur sig þó ekki vera mikinn áhugamann um Eurovision og finnst sú tónlist sem þar er spiluð yfirleitt svo leiðinleg að hann myndi ekki einu sinni nenna að hlusta á hana í eigin jarðarför. Samt sem áður er undirritaður aðdáandi hugrekkis – hugrekkis sem felst í því að mannsekja leyfir sér að vera hún sjálf fyrir framan 180 milljónir manna. Það gerði Thomas svo sannarlega og á þann hátt að það bar virkilega af.

Hræðslan

Við erum stöðugt að spá í það hvernig við eigum að vera frekar en hvernig við viljum vera. Ástæðan er sú að við erum hrædd um að vera dæmd af dómstólum samfélagsins sem fyrirbrigði vegna þess að við pössum ekki inn í hið félagslega skapaða „norm“. Ósjaldan fylgir okkur sú tilfinning að geta ekki stigið út fyrir viss mörk í gjörðum, útliti, hugsunarhætti eða lifnaðarháttum sökum þess að það er ekki viðurkennt sem hluti af eðlilegri hegðun.

Samfestingurinn og gríman

Við setjum ekki aðeins á okkur grímu sem hylur tilfinningar okkar, heldur klæðum við okkur einnig í samfesting samfélagsins og erum eins og við ,,eigum“ að vera. Þessi raun endurtekur sig heilu kynslóðirnar og þykir fullkomnlega eðlileg. En er það virkilega svo að við lifum í heimi þar sem ekki er hægt að koma sér þægilega fyrir í eigin líkama án þess að vera dæmd/ur fyrir það?

Svarið

Án efa hræðir það undirritaðan að svarið við ofangreindri spurningu sé líklegast já. Þó hefur umræðan um hið félagslega skapaða norm orðið háværari á seinustu misserum. Vitundarvakning hefur orðið og smá saman áttum við okkur á því að við sjálf smíðum kassann sem rúmar það sem talið er eðlilegt. Ímyndun okkar er sú að fyrir utan þennan kassa sé hræðilegur heimur þess óeðlilega og óleyfilega. 



Heimurinn fyrir utan kassann

Fyrir utan kassann er það ekki hræðilegra en svo að þar býr hugrakkt fólk sem lýgur ekki að sjálfu sér, er eins og það vill vera og hefur komið sér þægileg fyrir í eigin líkama. Þar hefur verið kveikt í öllum grímum og samfestingum og fólk lætur sér fátt um finnast ef þú ert nákvæmlega eins og þú vilt vera (fyrir það færðu meira að segja stundum hrós). Þar hefur hið félagslega skapaða norm verið sett upp sem leiksýning, sýningin ber heitið „Þegar þekkingarleysið réði ríkjum“.

Eitt sinn lék undirritaður hlutverk í sýningunni en ekki lengur, hann sagði upp - hvað með þig?




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×