Lífið

Jógvan Hansen giftir sig

Ellý Ármanns skrifar
Myndir/[email protected]
Jógvan Hansen, einn vinsælasti brúðkaupssöngvari landsins, gekk að eiga Hrafnhildi Jóhannesdóttur stærðfræðing, í Hallgrímskirkju í gær að viðstöddum fjölda manns.  Eins og sjá má á myndunum voru brúðhjónin stórglæsileg þegar þau yfirgáfu kirkjuna. 

Veislan fór fram á Hilton hótelinu þar sem gestum var meðal annars boðið að smakka skerpukjöt frá Færeyjum og hákarl og súra punga frá Íslandi. Matthías Matthíasson, Pétur Örn Guðmundsson, Hreimur Örn Heimisson og Friðrik Ómar Hjörleifsson, sem var veislustjóri, tóku lagið fyrir brúðhjónin. Þá var dansað fram á rauða nótt.

Skrollaðu neðst í grein til að sjá myndbandið.


Hrafnhildur, sem kennir stærðfræði á Keili, var vægast sagt glæsileg.

200 veislugestir

„Ég á stóran frændgarð í Færeyjum og margir koma til að vera viðstaddir brúðkaupið. Hér á landi hef ég starfað í tíu ár og eignast marga góða vini. Hrafnhildur á einnig stóra fjölskyldu. Mín ósk væri að bjóða öllum en það hefði orðið ansi dýrt. Listinn hljóðaði fyrst upp á 270 manns en við urðum að skera hann niður í tvö hundruð gesti,“ sagði Jógvan í mars síðastliðnum spurður út í stóra daginn.

Jógvan bað Hrafnildi að giftast sér á tónleikum Michael Bublé í London í fyrra sumar.

,,Færeyingar og Íslendingar kunna að skemmta sér saman," lét Jógvan hafa eftir sér en Færeyingarnir settu svip á veisluna með fallegum þjóðbúningum.

Yndisleg stemning skapaðist á meðal veislugesta fyrir utan kirkjuna sem fögnuðu með brúðhjónunum áður en haldið var á Hilton hótelið.

 Ármann Skæringsson og Friðrik Ómar stórglæsilegir.

Sonur brúðhjónanna, Jóhannes Ari Hansen, tveggja ára, vakti mikla lukku þegar hann kom keyrandi inn kirkjugólfið á rauðum traktor.  Þau eiga einnig dóttur, Ásu Maríu Hansen, sem er níu mánaða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.