Bíó og sjónvarp

Frumsýning á Vísi: Sýnishorn úr nýrri, íslenskri gamanmynd

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir frumsýnir í dag sýnishorn úr íslensku gamanmyndinni Bakk en áætlað er að frumsýna myndina um næstu páska.

Myndin fjallar um tvo æskuvini sem bakka á bíl hringinn í kringum Ísland. Það gengur ýmislegt á á ferðalaginu og þurfa félagarnir að glíma við sjálfa sig, hvorn annan, fortíðina og ýmislegt annað óvænt.

Handritið og sagan er eftir Gunnar Hansson sem einnig fer með eitt aðalhlutverkið ásamt þeim Víkingi Kristjánssyni og Sögu Garðarsdóttur en Gunnar og Davíð Óskar Ólafsson leikstýra myndinni í sameiningu. Myndin er framleidd af Mystery.

Með önnur hlutverk fara þau Þorsteinn Gunnarsson, Hallgrímur Ólafsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Friðrik Friðriksson, Hanna Maria Karlsdóttir, Halldór Gylfsson, Þorsteinn Guðmundsson, Edda Arnljótsdóttir, Kjartan Bjargmundsson, Höskuldur Sæmundsson, Guðjón Pálmarsson, Birgir Ísleifur Gunnarsson, Ragnar Ísleifur Bragsson, Salóme Gunnarsdóttir og Friðgeir Einarsson.

Fylgist með Bakk á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.