Matur

Kanilkökur með smjörkremi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Kanilkökur með smjörkremi

 
Kökurnar:

225 g mjúkt smjör

4 egg

2 bollar púðursykur

2 tsk rjómi

3 tsk matarsódi

2 tsk kanill

2 tsk vanilludropar

1/2 tsk salt

5 1/4 bolli hveiti



Kremið:

225 g mjúkt smjör

1 tsk vanilludropar

1 tsk kanill

2 bollar flórsykur

3 msk rjómi



Blandið smjöri, eggjum, púðursykri og rjóma vel saman. Bætið matarsóda, kanil, vanilludropum og salti saman við og hrærið vel. Bætið hveitinu við og blandið vel saman. Kælið deigið í ísskápi í eina klukkustund. 

Hitið ofninn í 175°C. Fletjið deigið út og skerið út það form sem þið viljið. Úr þessari uppskrift eiga að nást 48 hringir, sem sagt 24 samlokukökur. Bakið kökurnar í átta mínútur.

Hrærið smjör og vanilludropa vel saman. Bætið kanil við og flórsykri. Bætið síðan rjómanum saman við og hrærið vel. Bætið meiri flórsykri í blönduna ef kremið er ekki nógu stíft. Setjið krem á kökur og svo aðra köku ofan á.

Fengið hér.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.