Á leið í hringiðuna á tískuvikunni í París Álfrún Pálsdóttir skrifar 20. febrúar 2014 08:00 Hulda Halldóra er spennt að fara að vinna á sýningu Kenzo á tískuvikunni í París. „
Jú, það er auðvitað heiður að þeir hafi haft samband við mig og viljað fá mig í vinnu,“ segir Hulda Halldóra Tryggvadóttir stílisti sem er á leiðinni á tískuvikuna í París í næstu viku til að vinna fyrir tískuhúsið Kenzo. Hulda var fengin til að stílisera tískuþátt fyrir vefsíðu Kenzo síðastliðið haust sem lagðist svo vel í aðstandendur tískumerkisins að þeir buðu henni þetta tækifæri í kjölfarið. „Ég verð að vinna við að klæða fyrirsæturnar baksviðs fyrir sýninguna sem verður skemmtileg upplifun en þetta er í fyrsta sinn sem ég fer á tískuvikuna í París. Ég er mikill aðdáandi Kenzo,“ segir Hulda en sýningin sjálf fer fram 2. mars. Tískuvikan í París er ein sú stærsta í heimi þar sem mörg frægustu fatamerkin sýna haust- og vetrartískuna 2014. Kenzo hefur verið á mikilli uppsveiflu undanfarin misseri eftir að hönnunartvíeykið Carol Lim og Humberto Leon tóku við keflinu sem aðalhönnuðir merkisins. Hulda starfar sem stílisti og þrátt fyrir að vera á leiðinni í hringiðu tískubransann heillar ekki að starfa þar til frambúðar. „Ég stefni á frekara nám í búningahönnun. Kvikmyndir og sjónvarp heilla meira en tískuheimurinn í augnablikinu.“
RFF Mest lesið Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Bíó og sjónvarp Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Lífið Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Khalid kemur út úr skápnum Lífið Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Lífið Sykurlausar og dísætar smákökur Lífið Fleiri fréttir Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Khalid kemur út úr skápnum Skautasvellið opnað í tíunda sinn Sykurlausar og dísætar smákökur Flaug alla leið frá Ástralíu til að heimsækja Eiðistorg Fréttatían: Gömul mannshvörf, rukkanir og gos Vængir, bjór og lófaklapp þegar Kaninn var forsýndur Kendrick Lamar gefur út óvænta plötu „Þetta var það erfitt, að við vorum öll dofin“ Lúxusíbúð við Heiðmörk með stórbrotnu útsýni Jay Leno illa leikinn og með lepp Óhugnanlegt neyðarlínusímtal: „Hann var bara dáinn“ Hrund Gunnsteins kaupir íbúð Viktors Bjarka og Álfrúnar Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? „Þú varst að tala um Klausturmálið!“ Datt í miðri sýningu á Ellý: „Eitt lélegasta fall leikhússögunnar“ Sigraði í alþjóðlegri kokteilakeppni á Kýpur Mikill sigur að geta opnað aftur í Kringlunni Átta ár án áfengis og fíkniefna Flytja frá Bandaríkjunum eftir sigur Trump Svava Rós og Hinrik eiga von á dreng Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum „Laugarnesið hafði mjög mikil áhrif á mig í uppvexti“ Heitasti partýljósmyndari Reykjavíkur stefnir langt Dularfull tíst Dylans vekja furðu Sjá meira