Bíó og sjónvarp

Sjáðu fyrstu stikluna úr X-Men: Apocalypse

Birgir Olgeirsson skrifar
X-mennirnir mæta mögulega sínu öflugasta óvini til þessa í X-Men: Apocalypse.
X-mennirnir mæta mögulega sínu öflugasta óvini til þessa í X-Men: Apocalypse. Vísir/YouTube
Hér er komin fram fyrsta stiklan úr X-Men: Apocalypse sem frumsýnd verður í maí á næsta ári. Myndin mun segja frá baráttu ofurhetjanna úr X-Men liðinu við En Sabah Nur sem gengur undir nafninu Apocalypse og er almennt talinn í sagnabálki Marvel einn af fyrstu stökkbreyttu einstaklingurinn í ætt við þá sem eru í X-men og jafnframt einn sá allra öflugasti.

Oscar Isaac sem ApocalypseVísir/Youtube
Er Apocalypse ódauðleg vera sem fæddist fyrir fimm þúsund árum. Hann lifir eftir þeirri sannfæringu að aðeins þeir sterku lifi af og að aðeins þeir sem komist í gegnum harðræði og átök séu verðugir að halda lífi.

Tómas Lemarquis sem Caliban í X-Men: Apocalypse.Vísir/YouTube
Í gegnum Marvel-sagnabálkinn hefur hann reynt að eyða lífi á jörðinni nokkrum sinnum eins og kemur fram í meðfylgjandi stiklu. Með hlutverk Apocalypse fer Oscar Isaac en önnur aðalhlutverk eru í höndum Jennifer Lawrence, Michael Fassbender og James McAvoy. Íslendingurinn Tómas Lemarquis fer með hlutverk Calibans í myndinni sem bregður fyrir í upphafi stiklunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.