Bíó og sjónvarp

Leika ekki í næstu X-men

Ian McKellen og Patrick Stewart verða líklega ekki með í næstu mynd.
Ian McKellen og Patrick Stewart verða líklega ekki með í næstu mynd.
Patrick Stewart og Ian McKellen munu líklega ekki leika í hinni væntanlegu X-Men: Apocalypse sem kemur út á næsta ári.

Hún fjallar um persónur þeirra, Dr. X og Magneto, þegar þær voru yngri. „Ég komst að fleiru um myndina og þar verður einblínt á fyrri líf allra okkar persóna. Þess vegna held ég að við munum ekki koma við sögu,“ sagði Patrick Stewart.

James McAvoy og Michael Fassbender léku Dr. X og Magneto þegar þeir voru yngri í X-Men: Days of Future Past og munu væntanlega endurtaka leikinn í nýju myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.