Skoðun

Höfnum leið misskiptingar í heilbrigðismálum

Elín Björg Jónsdóttir skrifar
Viljayfirlýsing ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar í kjölfar þess að samið var við lækna ætti að vera okkur öllum mikið fagnaðarefni. Þar er kveðið á um samkeppnishæfni við Norðurlöndin varðandi aðbúnað starfsfólks og laun, byggingu nýs Landspítala og endurnýjun tækja svo fátt sé nefnt.

En í yfirlýsingunni segir jafnframt „opna þurfi möguleika á fjölbreyttum rekstrarformum“ innan heilbrigðisþjónustunnar. Það liggur í augum uppi að hér er átt við aukna þátttöku einkaaðila í velferðarþjónustunni og aukna einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Orð fjármálaráðherra í kjölfar undirritunar fyrrnefnds samkomulags benda þar að auki eindregið til þess að nú þegar séu áform innan heilbrigðisráðuneytisins um að fara í auknum mæli leið einkarekstrar. Við þeirri leið ber að vara enda sýna rannsóknir að aukinn einkarekstur er leið til aukinnar misskiptingar. Hvort sem einkarekstur í heilbrigðisþjónustu er boðaður í nafni „aukins valfrelsis“ eða „meiri hagkvæmni“ eru það staðreyndirnar sem tala sínu máli. Með auknum einkarekstri í félagslegu heilbrigðiskerfi, líkt og því kerfi sem í áratugi hefur ríkt samstaða um að halda úti á Íslandi, minnkar jafnræðið. Þjónustan verður jafnframt brotakenndari, lýðheilsu hrakar og aðgengið verður ekki jafn gott. Þótt öðru sé haldið fram sýna rannsóknir einnig fram á að fjárhagsleg hagkvæmni er meiri þegar heilbrigðisþjónustan er á forræði hins opinbera.

Efling heilbrigðiskerfisins er mikilvæg en hún verður að byggja á skynsömum leiðum sem stuðla áfram að jöfnum rétti allra til nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag. Vonandi er frekari sókn nú hafin til að við getum með sanni sagst standa jafnfætis nágrönnum okkar hvað varðar gæði og aðbúnað heilbrigðisstarfsfólks og þeirra sem þjónustuna þurfa að nota. En í þeirri uppbyggingu verðum við að hafa hag landsmanna allra að leiðarljósi, stuðla að jöfnu aðgengi og réttlæti.

Hagnaður sem til verður í heilbrigðiskerfinu á að fara í frekari uppbyggingu kerfisins en ekki enda í vasa einkaaðila sem reka þjónustuna. Um leið og heilsa fólks fer að verða mögulegur gróðavegur fyrir einkafyrirtæki á markaði er hætt við að hinir efnaminni verði undir. Það er ekki í anda þeirrar samfélagsgerðar sem við viljum vera kennd við. Það er ekki í anda jafnaðar og réttlætis.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×