Skoðun

Raforka á „tombóluverði“?

Pétur Blöndal skrifar

Íslendingar eru í öfundsverðri stöðu. Á fáeinum áratugum höfum við byggt upp eitt öflugasta raforkukerfi í heimi og verð til almennings er með því lægsta sem þekkist.



Það má segja að iðnaðaruppbygging hafi hafist fyrir alvöru þegar Landsvirkjun var stofnuð um Búrfellsvirkjun í tengslum við álverið í Straumsvík á sjöunda áratugnum. Síðan hefur orðið mikil framþróun, klasar hafa byggst upp í orkuiðnaði, svo sem jarðvarmaklasi og álklasi, og þekkingin er orðin útflutningsvara.



En er raforkan á Íslandi seld álverum „á tombóluverði“ eins og Jón Steinsson, dósent í hagfræði við Columbia-háskóla, hélt nýverið fram í viðtali á Bylgjunni?



Þess sér ekki stað í bókum Landsvirkjunar, en um 70% af tekjum fyrirtækisins koma frá áliðnaði. Það er til marks um sterka stöðu fyrirtækisins að í ársreikningum fyrir árið 2013 var bókfært eigið fé rúmir 200 milljarðar og handbært fé frá rekstri yfir 30 milljörðum. Á síðasta ársfundi kom fram að það gæti greitt upp allar sínar skuldir á rúmum níu árum, þrátt fyrir að hafa lokið við sína stærstu virkjun haustið 2007. Að gefnu tilefni er ástæða til að taka fram, að við sama tækifæri sagði forstjóri Landsvirkjunar að arðsemisáætlanir Kárahnjúkavirkjunar hefðu staðist.



Landsvirkjun gefur upp að meðalverð til stóriðju árið 2013 hafi verið 25,8 dollarar á megavattstund. Langsótt er að kalla það tombóluverð því sama ár var meira en þriðjungur af öllu áli utan Kína framleitt við lægra rafmagnsverð (34,6% allrar álframleiðslu utan Kína skv. upplýsingum frá greiningarfyrirtækinu CRU). Ísland er því vissulega samkeppnishæft hvað varðar orkuverð til álframleiðslu en samt ekki í lægsta þriðjungi.



Það sem hangir á spýtunni þegar talað er um „tombóluverð“ virðist vera lagning sæstrengs til Bretlands og sala rafmagns um hann fyrir ríkisstyrkt ofurverð. Of snemmt er að fullyrða nokkuð um mögulega arðsemi af því verkefni, því lítið liggur óyggjandi fyrir um helstu forsendur, tæknilegar, viðskiptalegar og þjóðhagslegar.



Ef allt gengi eftir í þeim efnum gæti það mögulega falið í sér góða viðbót við orkusölu til stóriðju. En það væri að sjálfsögðu enginn áfellisdómur yfir fyrri stefnu, sem hefur fært Íslendingum gríðarlegan ávinning og mun halda áfram að gera það.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×