Lífið

X er hjálparhella Helga Hjörvar

Anna Guðjónsdóttir skrifar
Helgi ákvað að fá sér leiðsöguhund meðan hann hefði enn ratsjón, til að læra betur á hann.
Helgi ákvað að fá sér leiðsöguhund meðan hann hefði enn ratsjón, til að læra betur á hann. Vísir/Pjetur
„Með hjálp X hef ég getað farið einn út að hlaupa aftur, ég gat það ekki lengur,“ segir Helgi Hjörvar alþingismaður sem stríðir við vaxandi sjóndepru. Hann fékk leiðsöguhundinn X árið 2009 og segir hann mikla hjálparhellu auk þess að vera eftirlæti fjölskyldunnar.

Helgi kveðst hafa tekið þá ákvörðun að fá sér hundinn meðan hann hefði enn ratsjón til að læra betur á hann. Hann segir nauðsynlegt að leyfa X að leika sér og fá útrás þótt annað komi fram í reglubókum. „Það verður bara að passa að leikurinn bitni ekki á einbeitingu eða aga.“

Landssöfnun Lions með Rauðu fjöðrinni hefst í dag og í ár verður safnað fyrir leiðsöguhundum fyrir blinda og sjónskerta. Hver hundur kostar í heildina um 8-10 milljónir króna.

Sjá einnig: Bítið - Sala á Rauðu Fjöðrinni hefst í dag, safnað fyrir blindrahundum

„Þeir eru átta núna en einn þeirra er á leið á eftirlaun, því verða þeir sjö í sumar og við vitum að það er þörf á fleiri,“ segir Huld Magnúsdóttir, forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.

Hún segir þörf á sjö leiðsöguhundum í viðbót. „Næðum við því værum við á svipuðum stað og nágrannaþjóðir okkar.“

Eygló Harðardóttir félagsmálaráðherra mun fjárfesta í fyrstu Rauðu fjöðrinni í Kringlunni en félagar Lions verða á fjölförnum stöðum víðs vegar um landið alla helgina með fjaðrir á lofti. Einnig verður hægt að styrkja málstaðinn í söfnunarsíma.-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.