Tíska og hönnun

Innsýn í hvernig bransinn virkar

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Guðmundur Jörundsson stendur fyrir tveggja vikna fatahönnunarnámskeiði fyrir fimmtán ára og eldri.
Guðmundur Jörundsson stendur fyrir tveggja vikna fatahönnunarnámskeiði fyrir fimmtán ára og eldri. Vísir/Ernir
Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson, sem er flestum kunnur sem stofnandi og yfirhönnuður tískuhússins JÖR by GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON, stendur fyrir tveggja vikna fatahönnunarnámskeiði.

„Ég man þegar ég var að byrja í náminu að það vantaði svona svolitla kynningu á þessu. Þegar ég byrjaði í LHÍ vissi ég ekkert hvað ég var að gera,“ segir hann og bætir við: „Innsýn inn í hvernig þessi bransi er frá einhverjum sem er búinn að vera að vinna í þessu, það er svona svolítið öðruvísi en námið.“

Námskeiðið, sem taka mun á helstu undirstöðuatriðum hvað varðar hönnun og gerð fatalínu, stendur yfir í tvær vikur og mun nemendum verða úthlutað heimaverkefnum og munu þeir hanna eigin fatalínu.

„Rannsóknarvinnan verður líka kennd, en hún er mikilvægur þáttur í þessu, kynna það að halda utan um skissubók, velja efni og liti sem fitta og svona,“ segir Guðmundur og að hans sögn eiga bæði byrjendur og lengra komnir heima á námskeiðinu sem hugsað er fyrir fimmtán ára og upp úr.

„Það er áhugavert að sjá um hvað þetta snýst og ef maður er að pæla í að fara að læra þetta þá fær maður svona „touch base“,“ segir Guðmundur að lokum.

Námskeiðið hefst þann 17. maí næstkomandi og stendur yfir í tvær vikur en fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við [email protected].






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.