Skoðun

Takk fyrir styttu og sjóð

Siv Friðleifsdóttir skrifar
Um bæinn má víða finna styttur í fullri stærð af nafngreindum mikilvægum aðilum. Engin þeirra er af konu þrátt fyrir allt sem þær hafa afrekað í gegnum tíðina bæði á opinberum vettvangi og heimavið. Þann 19. júní sl. var brotið blað, en þá var stytta af Ingibjörgu H. Bjarnason, fyrstu konunni sem kjörin var á Alþingi, afhjúpuð framan við Skálann, nýbyggingu Alþingis, í tilefni hátíðarhalda vegna 100 ára kosningaréttar kvenna á Íslandi. Ingibjörg var öflugur málsvari kvenna og kvennasamtaka á þingi og og barðist ötullega fyrir konur og börn, ekki síst þau sem höllum fæti stóðu.

Nokkrum aðilum ber sérstaklega að þakka þennan tímamótaviðburð. Takk, Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, fyrir að hafa haft forgöngu um að styttan fékk að standa á verðugum stað við Alþingi um aldur og ævi. Slíkt var ekki sjálfgefið. Takk, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarnefndar 100 ára kosningaréttarafmælis kvenna, fyrir að hafa staðið fyrir fjársöfnun meðal fyrirtækja til styttugerðar án þess að gefast upp, bæði í meðvindi, en ekki síst í mótvindi. Takk, Arion banki, Landsbankinn, Íslandbanki, MP banki, Seðlabankinn, Valitor, Borgun, Eimskip, BM Vallá og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi fyrir að heiðra kosningaréttarafmælið með því að fjármagna styttuna. Takk, Ragnheiður Stefánsdóttir, myndhöggvari, fyrir að skapa höggmynd af þingkonu sem gustaði og geislaði af, í anda þeirra kvenna sem dregið hafa vagninn í jafnréttisbaráttunni.

Sjóður til að komast lengra

Þótt Ísland mælist í fararbroddi þjóða í jafnréttismálum er enn mikið verk óunnið. Nefna má launamun kynjanna, kynskiptan vinnumarkað, ofbeldi gegn konum og færri konur í forystu stjórnmálanna sem og stjórnun fyrirtækja. Til að taka á þessum málum hafði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ásamt öllum öðrum forystumönnum stjórnmálaflokkanna á Alþingi, þeim Bjarna Benediktssyni, Árna Páli Árnasyni, Katrínu Jakobsdóttur, Guðmundi Steingrímssyni og Birgittu Jónsdóttur, forystu þann 19. júní sl. um að stofna Jafnréttissjóð Íslands, sem verja mun 100 milljónum króna í 5 ár, samtals 500 milljónum króna, til að auka jafnrétti kynjanna.

Takk, öll, fyrir frumkvæði og góða samstöðu sem nýtast mun á næstu árum til mikilvægra jafnréttismálefna. Brýnt er að fagna og þakka þegar vel er gert. Í ofangreindum málum er það mjög við hæfi.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×