Skoðun

Aldraðir fái sömu hækkun og launþegar

Björgvin Guðmundsson skrifar
1. maí sl. fékk ófaglært verkafólk 27-31 þús. kr. kauphækkun á mánuði samkvæmt nýjum kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins. Það eru þeir launalægstu á meðal verkafólks sem fengu þessa hækkun. Samkvæmt þessum samningum eiga laun að hækka í 300 þúsund kr. á þremur árum. Aldraðir og öryrkjar eiga að mínu mati að fá sömu hækkun á sínum lífeyri frá almannatryggingum.

Lífeyrir hækki í 321 þúsund

Aldraðir og öryrkjar eiga að mínu mati að fá 27-31 þúsund króna hækkun á lífeyri á mánuði frá TR frá 1. maí sl. og síðan á lífeyrir aldraðra og öryrkja að hækka í 300 þúsund krónur á mánuði á þremur árum eins og hjá verkafólki. Ég tel að vísu eðlilegra að lífeyrir hækki í 321 þúsund á mánuði í samræmi við neyslukönnun Hagstofunnar. Það er meðaltalsneysla einhleypinga í dag. Eldri borgarar þurfa sömu upphæð.

Hvers vegna tel ég að aldraðir og öryrkjar eigi að fá sömu hækkun og verkafólk? Jú, vegna þess að í lögum stendur að taka eigi mið af launabreytingum við ákvörðun lífeyris og lífeyrir aldrei að hækka minna en vísitala neysluverðs. Áður stóð í lögunum að hækka ætti lífeyri í samræmi við hækkun lágmarkslauna. Þegar orðalaginu var breytt sagði þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson, að nýja orðalagið væri hagstæðara öldruðum og öryrkjum. Með hliðsjón af þeirri yfirlýsingu tel ég að lífeyrisþegar eigi rétt á sömu kjarabótum og verkafólk nú.

Stjórnvöld þverskallast við

Það kemur ekki á óvart að stjórnvöld reyni að þverskallast við að greiða öldruðum og öryrkjum þá hækkun lífeyris sem þessum aðilum ber. Eins og fram kom í síðustu grein minni í Fréttablaðinu um kjör aldraðra hafa stjórnvöld ítrekað reynt að koma sér hjá því að greiða lífeyrisþegum lögbundnar hækkanir. Stjórnvöld hafa þverskallast við að greiða öldruðum og öryrkjum lögbundnar kjarabætur eða klipið duglega af þeim.

Mannréttindabrot að sniðganga lífeyrisþega

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í viðtali í útvarpsþættinum Á Sprengisandi að ríkisstjórnin kæmist ekki upp með það að láta aldraða og öryrkja ekki fá kjarabætur eins og launþega. Og það er mergurinn málsins. Ríkisstjórnin getur þverskallast við í þessu efni og tafið málið eitthvað en hún kemst ekki hjá því að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja, þegar nálega allir launþegar landsins eru að fá kauphækkun. Það er hreint mannréttindabrot að neita lífeyrisþegum um hliðstæðar kjarabætur og launþegar fá. Fjármálaráðherra hefur verið of fljótur á sér þegar hann lýsti því yfir á Alþingi að aldraðir og öryrkjar fengju ekki hækkun lífeyris í kjölfar nýrra kjarasamninga.

Alþingi taki í taumana

Ef ríkisstjórnin leiðréttir ekki lífeyri aldraðra og öryrkja til samræmis við launabreytingar láglaunafólks verður Alþingi að taka í taumana, taka fram fyrir hendurnar á ríkisstjórninni og ákveða að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja til samræmis við launahækkanir verkafólks. Alþingi hefur valdið og þar er meirihluti fyrir þessari sjálfsögðu leiðréttingu.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×