Bíó og sjónvarp

Hafþór Júlíus leikur á móti Van Damme í Kickboxer: Retaliation

Birgir Olgeirsson skrifar
Hafþór Júlíus Björnsson.
Hafþór Júlíus Björnsson.
Það er aldeilis von á veislu fyrir aðdáendur vöðvabúntsins Jean –Claude Van Damme því væntanleg í kvikmyndahús á þessu ári er kvikmyndin KickboxerVengance. Myndin er endurgerð Kickboxer-myndarinnar sem kom út árið 1989.

Myndin mun skarta þeim Van Damme og Dave Bautista í aðalhlutverkum en framleiðsluteymið á bak við þessa mynd hefur nú þegar sett framhald hennar í framleiðslu sem heitir KickboxerRetaliation.  Þar mun íslenska vöðvatröllið Hafþór Júlíus Björnsson  fara með eitt af hlutverkunum í þeirri mynd ásamt Van Damme. 

Á vefnum Comingsoon.net kemur fram að Hafþór muni leika aðalillmennið í myndinni.

„Viðbrögðin sem við höfum fengið við fyrri myndinni, fyrir frumsýningu hennar, eru ótrúleg og við erum mjög spenntir að fá að halda áfram og þá sérstaklega eftir að hafa bætt Fjallinu við leikarahópinn,“ er haft eftir framleiðanda myndarinnar, Rob Hickman, á vefnum Comingsoon.net.

Tökur á myndinni hefjast í Taílandi í maí næstkomandi í kjölfar keppninnar Sterkasti maður heims en Hafþór verður að sjálfsögðu einn af þeim sem berst um titilinn þar.  

Hér má sjá plakatið fyrir Kickboxer: Retaliation. 

I'm happy to tell my fans that my acting career is growing - I am starring in Kickboxer Retaliation, filmed later this...

Posted by Hafþór Júlíus Björnsson (Hafthor Julius Bjornsson) on Wednesday, February 3, 2016
Hér fyrir neðan má sjá brot úr Kickboxer: Vengance sem kemur út á þessu ári. 

Hér fyrir neðan má sjá stiklu úr Kickboxer sem kom út árið 1989. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.