Bíó og sjónvarp

Óskarinn: Spotlight valin besta myndin

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Framleiðendur og leikhópur kvikmyndarinnar Spotlight tók við verðlaununum fyrir bestu mynd í nótt.
Framleiðendur og leikhópur kvikmyndarinnar Spotlight tók við verðlaununum fyrir bestu mynd í nótt. Vísir/AFP
Kvikmyndin Spotlight var valin besta mynd ársins á Óskarsverðlaunahátíðinni sem afhent voru í Los Angeles í nótt.

Leonardo Di Caprio var valinn besti leikarinn og Brie Larsson besta leikkonan. Jóhann Jóhannsson, sem tilnefndur var fyrir bestu tónlist, fór tómhentur heim.

Sigur Spotlight kom nokkuð á óvart. Myndin hefur þó fengið mikið lof að undanförnu en hún fjallar um blaðamenn á Boston Globe sem á sínum tíma flettu ofan af kynferðisbrotum presta innan kaþólsku kirkjunnar í borginni.

Besti leikarinn var valinn Leonardo DiCaprio fyrir frammistöðu sína í The Revenant en hann hefur aldrei áður unnið til verðlauna á hátíðinni þrátt fyrir að hafa verið tilnefndur fimm sinnum í gegnum tíðina.

Brie Larson var valin besta leikkonan fyrir hlutverk sitt í The Room og besti leikstjórinn var valinn Alejandro González Iñárritu, leikstjóri The Revenant, sem náði þeim merka áfanga að vinna óskarinn fyrir bestu leikstjórn tvö ár í röð.

Flest verðlaun hlaut þó framtíðartryllirinn Mad Max: Fury Road, sex talsins, en flest eru þau fyrir tæknibrellur og gervi.

Tónskáldið Jóhann Jóhannsson var tilnefndur fyrir tónlistina í Sicario en hann laut í lægra haldi fyrir aldna snillingnum Ennio Morricone sem samdi tónlistina í nýjustu mynd Quentins Tarantino, The Hateful Eight.

Morricone hefur aldrei áður hlotið Óskarsverðlaunin þrátt fyrir að þetta væri sjötta tilnefningin hans, en árið 2007 var hann þó sæmdur sérstökum heiðursverðlaunum fyrir framlag sitt til kvikmyndatónlistar.

Að neðan má sjá lista yfir sigurvegara kvöldsins:

Besta kvikmyndin

Spotlight- Michael Sugar, Steve Golin, Nicole Rocklin og Blye Pagon Faust, framleiðendur

Besti leikarinn í aðalhlutverki

Leonardo DiCaprio, The Revenant

Besta leikkonan í aðalhlutverki

Brie Larson, Room

Besti leikstjórinn

Alejandro G. Inarritu, The Revenant

Besti leikarinn í aukahlutverki

Mark Rylance, The Bridge of Spies

Besta leikkonan í aukahlutverki

Alicia Vikander, The Danish Girl



Besta heimildarmyndin í fullri lengd

Amy, Asif Kapadia og James Gay-Rees

Besta stutta heimildarmynd

A Girl in the River: The Price of Forgiveness, Sharmeen Obaid-Chinoy

Besta klipping

Mad Max: Fury Road, Margaret Sixel

Besta erlenda kvikmynd

Son of Saul (Ungverjaland)

Besta hár og förðun

Mad Max: Fury Road - Lesley Vanderwalt, Elka Wardega og Damian Martin

Besta kvikmyndatónlist

The Hateful Eight - Ennio Morricone Sicario

Besta lag

Writing’s On The Wall úr Spectre. Lag og texti eftir Jimmy Napes og Sam Smith

Besta listræna stjórnun

Mad Max: Fury Road - Leikmynd: Colin Gibson; Leikmunir: Lisa Thompson

Besta teikni-/brúðumyndin

Inside Out

Besta stutta teiknimyndin

Bear Story - Gabriel Osorio og Pato Escala

Besta leikna stuttmyndin

Stutterer - Benjamin Cleary og Serena Armitage

Besta hljóðklipping

Mad Max: Fury Road - Mark Mangini og David White

Besta hljóðblöndun

Mad Max: Fury Road - Chris Jenkins, Gregg Rudloff og Ben Osmo

Bestu tæknibrellurnar

Ex Machina - Andrew Whitehurst, Paul Norris, Mark Ardington og Sara Bennett

Besta handrit byggt á áður útgefnu efni

The Big Short - Handrit eftir Charles Randolph og Adam McKayBrooklyn

Besta frumsamda handrit

Spotlight - Eftir Josh Singer & Tom McCarthy

Besta kvikmyndataka

The Revenant, Emmanuel Lubezki

Bestu búningar

Mad Max: Fury Road, Jenny Beavan






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.