Bíó og sjónvarp

Frumsýning á Vísi: Spennuþrungin stikla úr Eiðnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Spennumyndin Eiðurinn er ný kvikmynd eftir Baltasar Kormák. Myndin verður frumsýnd á Íslandi 9. september og á kvikmyndahátíðinni í Toronto sömu helgi. Í byrjun ágústmánaðar var fyrsta stiklan úr myndinni frumsýnd. Nú hefur Lífið fengið aðra glænýja stiklu í hendurnar og má með sanni segja að um svakalega spennumynd sé að ræða.

Myndin segir frá Finni, sem þykir skara fram úr í starfi sínu sem hjartaskurðlæknir. En þegar hann áttar sig á að dóttir hans er komin í neyslu og kynnir þekktan dópsala fyrir fjölskyldunni sem nýja kærastann, koma fram brestir í einkalífinu.

Finnur ákveður að taka í taumana og er staðráðinn í að koma dótturinni á réttan kjöl, hvað sem það kostar. Að þessu sinni er Baltasar ekki einungis leikstjóri og einn af framleiðandum myndarinnar, heldur leikur hann einnig aðalhlutverið.

Hera Hilmarsdóttir leikur dótturina, Önnu og Gísli Örn Garðarsson er í hlutverki kærastans. Handritið er byggt á upprunalegri sögu Ólafs Egils Egilssonar, en er skrifað af þeim Ólafi og Baltasar. RVK Studios framleiðir myndina í samstarfi við Film4 í Bretlandi og ZDF í Þýskalandi, en framleiðendur eru þeir Baltasar Kormákur og Magnús Viðar Sigurðsson.

Hér að ofan má sjá þetta flotta sýnishorn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.