Skoðun

Átök eða samtal?

Elín Björg Jónsdóttir skrifar
Síðustu ár hafa íslensk stjórnmál einkennst af hörðum átökum og á köflum óbilgirni. Traustið er horfið og tortryggnin ríkir. Þeir sem vinna að myndun nýrrar ríkisstjórnar verða að bregðast við þessari þróun með því að vinna að þeim stóru málum sem bíða í sátt í stað átaka.

Við erum flest sammála um nauðsyn þess að viðhalda efnahagslegum stöðugleika, en félagslegur stöðugleiki er ekki síður mikilvægur. Ný ríkisstjórn þarf að leggja strax í þá miklu uppbyggingu á velferðarkerfinu sem kallað hefur verið eftir.

Allir virðast sammála um mikilvægi þess að byggja upp heilbrigðiskerfið að nýju. En það skiptir máli hvernig það er gert. Nú þegar kerfið hefur verið skorið inn að beini þykir einhverjum eflaust freistandi að auka einkavæðingu. Um það verður aldrei sátt í samfélaginu. Rannsóknir sýna að rúmlega 80 prósent landsmanna vilja að hið opinbera sjái um heilbrigðisþjónustuna. Eigi sátt að ríkja um heilbrigðiskerfið verður að hlusta á þjóðarviljann og hætta tilraunastarfsemi með einkavæðingu á rekstri.

Ný ríkisstjórn verður að hafa málefni fjölskyldna í forgrunni og byggja upp fjölskylduvænna samfélag. Þar skiptir miklu að bregðast við erfiðri stöðu á húsnæðismarkaði þar sem ungum fjölskyldum er gert erfitt eða ómögulegt að koma þaki yfir höfuðið. Einnig er afar brýnt að bæta fæðingarorlofskerfið verulega.

Miklar launahækkanir sem kjararáð hefur fært æðstu embættismönnum og kjörnum fulltrúum hafa valdið mikilli ólgu og mikilvægt fyrir nýja ríkisstjórn að vinda strax ofan af þeim. Annars er hætta á að allt fari í bál og brand á vinnumarkaði sem sannarlega eykur ekki stöðugleika eða sátt í samfélaginu.

Opinberir starfsmenn skrifuðu nýlega undir samkomulag við ríki og sveitarfélög um samræmingu lífeyriskerfisins. Ný ríkisstjórn þarf að fínpússa frumvarp til að koma því samkomulagi í lög. Þannig má koma í veg fyrir verulegar hækkanir á mótframlagi launagreiðenda í opinberu lífeyrissjóðina um áramót. Verði hækkunin að veruleika mun hún minnka möguleika opinberra starfsmanna á launahækkunum og auka þannig enn á launabilið milli opinbera og almenna markaðarins.

Stóru málin bíða. Vinnum að þeim í sátt.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×