Bíó og sjónvarp

Segja leikkonurnar hafa skrifað undir samning um þriðju Sex and the City-myndina

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það hefur verið mikið rætt um möguleikann á því að gera þriðju kvikmyndina byggða á sjónvarpsþáttunum Sex and the City en þeir nutu gríðarlegra vinsælda þegar þeir voru sýndir á HBO á árunum 1998 til 2004. Tvær bíómyndir hafa síðan verið gerðar eftir að þættirnir luku göngu sinni.

Nú virðast líkurnar á því að þriðja myndin verði gerð vera að aukast þar sem miðillinn Radar Online greinir frá því að leikkonurnar fjórar, þær Sarah Jessica Parker, Cynthia Nixon, Kristin Davis og Kim Cattrall, hafi allar skrifað undir samning þess efnis að leika í myndinni.

„Allar konurnar hafa formlega skrifað undir samning um að leika í þriðju myndinni,“ er haft eftir heimildarmanni á síðunni en þar segir jafnframt að Parker hafi næstum því ekki skrifað undir því hún hafi ekki verið sátt við handritið.

Í október síðastliðnum gaf Parker það í skyn að þriðja myndin yrði mögulega framleidd.

„Það er alltaf möguleiki. Ég veit ekki hvort það verður mynd eða þáttaröð. Það er enn allt opið í því og það verður rætt þar til niðurstaða fæst í málið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.