Lífið

Leikstjóri Keðjusagarmorðanna í Texas látinn

Kjartan Kjartansson skrifar
Gunnar Hansen í hlutverki sínu sem Leðurfés í frægustu mynd Hooper.
Gunnar Hansen í hlutverki sínu sem Leðurfés í frægustu mynd Hooper. Vísir/AFP
Tobe Hooper, bandaríski leikstjórinn sem þekktastur fyrir hryllingsmyndina Keðjusagarmorðin í Texas, er látinn. Myndin var bönnuð í nokkrum löndum en hún skartaði Íslendingnum Gunnari Hansen í aðalhlutverkinu.

Hooper var 74 ára þegar hann lést, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Hann komst í sviðsljósið fyrir hryllingsmyndina umdeildu árið 1974 en hann gat sér einnig gott orð fyrir „Ærsladrauginn“ [e. Poltergeist] árið 1982.

Áður hafði Hooper starfað sem háskólaprófessor og myndatökumaður í heimildamyndum áður en hann braust fram á sjónarsviðið sem leikstjóri á 8. áratugi síðustu aldar.

Gunnar lék Leðurfés, óðan fjöldamorðinga vopnaðan keðjusög, Keðjusagarmorðunum. Hann lést í nóvember árið 2015.

Tobe Hooper lést í Los Angeles.Vísir/EPA





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.