Skoðun

Áhrif viðhorfa og samskipta á framleiðni

Herdís Pála Pálsdóttir skrifar
Við mat á starfsmönnum, jafnt yfirmönnum og almennum starfsmönnum, er í dag gjarnan horft til tveggja þátta. Það er annars vegar mælanlegur árangur í starfi, svo sem sölutölur, framleiddar einingar, nýting eða álíka. Hins vegar það sem hér verður einu nafni kallað viðhorf.

Undir viðhorf falla þá þættir eins og vilji starfsmanns til að aðstoða samstarfsfólk. Til að fara eftir settum verkreglum og fyrir fram ákveðnu verklagi. Hvernig starfsmaður talar til samstarfsfólks, eða um það þegar það er ekki viðstatt. Hvort starfsmaður reyni að komast fram hjá svörum sem hann hefur fengið frá yfirmanni og þar fram eftir götunum. Allir eiga rétt á sínum skoðunum en það skiptir máli hvernig þeim er komið á framfæri.

Samskiptahæfni yfirmanna

Þeir sem taka það að sér að vera með mannaforráð á vinnustöðum þurfa að taka ábyrgð á þeirri ábyrgð, ef svo má segja. Mannaforráðum þarf að sinna.

Eitt það mikilvægasta við að hafa mannaforráð eru samskipti, og þá einna helst endurgjöf á störf starfsfólks. Starfsfólk sem stendur sig vel ætti að fá að heyra það frá yfirmanni sínum. Starfsfólk sem getur bætt sig í starfi, hvort sem er í mælanlegum árangri eða því sem hér er kallað viðhorf, þarf að fá endurgjöf um það.

Mikilvægt er að endurgjöfin sé uppbyggjandi og leiðbeinandi, en umfram allt skýr. Endurgjöfin þarf að vera þannig að starfsmaður skilji og meðtaki hvað yfirmaður er að segja.

Samskiptahæfni almennra starfsmanna

Starfsmenn eiga oftast í daglegum samskiptum við samstarfsfólk og oft við viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila. Mikilvægt er að vanda samskiptin.

Uppbyggjandi samskipti fela það í sér að starfsmenn hlusta á aðra, taka þátt í samtölum, kalla eftir skoðunum allra í hópnum og þar fram eftir götunum. Uppbyggjandi samskipti eru hvetjandi, styðjandi og til þess fallin að ná auknum árangri. Niðurrífandi samskipti eru oft þannig að samtöl verða gjarnan að einræðum, gert er lítið úr öðrum, einstaklingum er ekki hleypt inn í samtöl og svo framvegis.

Samskipti á vinnustöðum segja mikið um vinnustaðarmenninguna. Samkvæmt rannsókn sem Gartner framkvæmdi geta einstaklingar sem hafa niðurrífandi samskiptastíl dregið úr framleiðni teyma um allt að 30-40%. Það er ekki ásættanlegt fyrir neinn.

Höfundur er ráðgjafi, markþjálfi og FKA-félagskona.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×