Bíó og sjónvarp

Gagnrýnendur tvístraðir í afstöðu gagnvart Justice League

Birgir Olgeirsson skrifar
Justice League segir frá baráttu Batman, Wonder Woman, Cyborg, The Flash og Aquaman við illmennið Steppenwolf.
Justice League segir frá baráttu Batman, Wonder Woman, Cyborg, The Flash og Aquaman við illmennið Steppenwolf. IMDB
Stórmyndin Justice League verður frumsýnd hér á landi á föstudag en ytra hafa nokkrir gagnrýnendur birt umsagnir um myndina. Þar fær hún ýmist hrós eða last en búist er við því að flestir áhorfendur eigi eftir að geta notið hennar.

Myndin kostaði um 300 milljónir dollara, eða því sem nemur um 30 milljörðum íslenskra króna, og var að að hluta til tekin upp hér á landi um haustið 2016, nánar tiltekið á Djúpavík á Vestfjörðum.

Justice League segir frá baráttu Batman, Wonder Woman, Cyborg, The Flash og Aquaman við illmennið Steppenwolf. Myndin er framhald af Batman v Superman: Dawn of Justice þar sem Superman sjálfur fórnaði lífi sínu til að stöðva ófreskjuna Doomsday.

IMDB
Á vef Telegraph hafa verið teknar saman umsagnir gagnrýnenda um myndina. Gagnrýnendur í Evrópu telja myndina vera vonbrigði, í Kanada en myndin fær hlýlegri móttökur hjá gagnrýnendum í Bandaríkjunum.

Á vef Rotten Tomatoes er vanalega birt einkunn um myndir sem byggð er á fjölda neikvæðra og jákvæðra umsagna, en forsvarsmenn vefsins hafa ákveðið að bíða með að gefa upp einkunnina þar til á morgun, en þá mun Rotten Tomatoes kynna til leiks Facebook-myndbandaröð sem nefnist See It/Skip It (Sjáðu hana/Slepptu henni) þar sem einkunn Justice League verður gefin upp.

Gagnrýnendur bresku blaðanna Telegraph, Guardian, Independent og Empire voru óánægðir með þessa Justice League.

Hún fær eina stjörnu af fimm frá gagnrýnanda The Telegraph. „Myndin er vandræðaleg áhorfs allan tímann,“ ritar gagnrýnandi Telegraph sem segir sögu myndarinnar innihalda svo stórar gloppur að þær minni helst á Miklagljúfur Bandaríkjanna. „Hluti af þér vill bíða og sjá hvernig þær líta út þegar sólin sest.“

Gagnrýnandi The Independent gefur myndinni tvær stjörnur af fimm og segir hana með með barnalegri ofurhetjumyndum sem hafa komið út. Hún sói hæfileikum frábærra leikara og fórni persónusköpun fyrir tölvubrellur og segir gagnrýnandinn myndina vera hörmuleg vonbrigði.

Myndin fær tvær stjörnur af fimm frá gagnrýnanda The Guardian sem spyr hvort það sé hreinlega tími til að fá George Clooney aftur í hlutverk Batman til að vega upp á móti leiðindunum sem Ben Affleck býður upp á í hlutverki hetjunnar í Justice League.

Jason Momoa og Ben Affleck í Justice League.IMDB
Gagnrýnandi Empire gefur myndinni tvær stjörnu af fimm og segir hana vera ómerkilega tölvubrellusúpu.

Gagnrýnandi Forbes segir myndina veita áhorfendum sem kaupa miða á þessa mynd ánægju. Um sé að ræða tveggja klukkustunda langa mynd sem mun kæta bæði unga sem aldna. Hún minni aðdáendur ofurhetja á hvers vegna þeir heilluðustu af þeim í æsku.

Variety segir myndina sem fullnægjandi og að hún skili því sem er ætlast til af henni, auðmeltanlegu léttmeti.

Globe and Mail gefur myndinni tvær stjörnu af fimm og segir hana einungis staðfesta það hversu mikill eftirbátur kvikmyndasería DC-Comics er þegar kemur að samanburði við Marvel-myndirnar.

IGN segir myndina af sína kosti og galla en að hún skili það mikilli skemmtun að það réttlæti meðmæli.

Los Angeles Times segir myndina skila sínu og að hún hafi raunverulega áferð ofurhetjumyndar á sér.

The Verge segir myndina vera sundurleita en hafi sína kosti.

GameSpot segir myndina vera einfalda en góða, innihalda ágætis brandara og frábær hasaratriði.


Tengdar fréttir

Bréfberi ógn við Batmanmynd

Aðalvarðstjóri í lögreglunni segir póstburðarmann spilla fyrir Strandamönnum með birtingu mynda af tökustað Hollywoodmyndar í Djúpuvík. Pósturinn segir sér hafa verið skipað að fjarlægja myndir af netinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.