Ólafía í tapliði í fjórleik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. desember 2017 08:00 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. vísir/getty
Keppnislið Evrópumótaraðarinnar er í þriðja sæti á Queens-mótinu í Japan með tvo vinninga eftir fyrsta keppnisdag sem fór fram í nótt. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í Evrópuúrvalinu en var í tapliði þegar keppni í fjórleik fór fram í nótt. Hún var í liði með Carly Booth og töpuðu þær fyrir Seon-Woo Bae og Jeong-Eun Lee sem keppa á mótaröðinni í Suður-Kóreu. Ólafía Þórunn og Booth voru að elta allan hringinn og töpuðu eftir fimmtándu holu þegar þær voru fjórum vinningum undir. Fjögur keppnislið eru á mótinu en auk keppnisliðs mótaraðar Evrópu og Suður-Kóreu eru keppnislið mótaraðanna í Japan og Ástralíu. Eftir fyrsta keppnisdag er Suður-Kórea efst með átta vinninga, Japan með fimm, Evrópa tvo og Ástralía einn. Sýnt verður beint frá mótinu klukkan 03.00 aðfaranótt laugardags á Golfstöðinni.
Golf Mest lesið Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Sameinast litla bróður hjá Kolstad Handbolti Fleiri fréttir Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira