Vönduð skinnavara í miklu úrvali 11. desember 2017 15:00 Í versluninni á Snorrabraut 56 má finna fjölbreytt úrval gjafavöru og einnig fallegar skinnflíkur sem er einungis hægt að fá þar.
Feldur Verkstæði er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun á skinnvörum. Hjónin Heiðar Sigurðsson og Kristín Birgisdóttir stofnuðu Feld Verkstæði til að auka úrvalið á skinnvarningi sem þeim fannst takmarkað. Þau vildu leggja áherslu á klassískar vörur úr skinni þar sem notagildi og gæði eru í hámarki, bæði í efni og framleiðslu. Kristín segir þau kaupa vottuð skinn sem keypt eru á uppboðum bæði í Danmörku og Finnlandi og eru þannig í miklum gæðaflokki. Það sama á við um framleiðsluna þar sem þau eru í nánu sambandi við framleiðendur sem allir sérhæfa sig í ákveðinni skinnvinnslu. Það hefur tekið mörg ár að finna bestu framleiðendurna og eru þau sífellt að vinna í því að halda gæðum og þróa vörur sem eru klassískar og óháðar ákveðinni tískubylgju „Klassískar skinnvörur eru fjárfesting, þær lifa lengi og endast vel. Ef þú kaupir pels getur hann gengið í arf til afkomenda, eins og gull. Fallega skinnhúfu áttu alla ævi, svo framarlega sem þú týnir henni ekki. Við erum einnig með mikið af smávöru sem er ekki óþarflega dýr og flestir geta keypt og hefur notið mikilla vinsælda.“Marta Heiðarsdóttir, fatahönnuður, starfar nú hjá fyrirtæki foreldra sinna og hannar flíkur úr fallegu skinni.Vörur frá Feldi hafa í mörg ár verið til sölu í ýmsum verslunum, þar á meðal í Geysi og Rammagerðinni. Heiðar og Kristín hafa byggt fyrirtækið hægt og rólega upp og smám saman aukið vöruúrvalið. Með tímanum ákváðu þau að opna eigin verslun sem sýnir allt það úrval af vörum sem þau hafa hannað og þróað gegnum árin. Eftir opnun verslunarinnar á Snorrabraut 56 bættu þau við sig úrvali af pelsum, mokkakápum sérgerðum krögum og vestum. Auk þess hafa þau verið að þróa skinnfóðraða úlpu sem er mjög vinsæl í dag að sögn Kristínar. Heiðar útskrifaðist sem feldskeri frá skóla í Tranos í Svíþjóð árið 1983 og hefur unnið við fagið síðan, þó með hléum. Nú hefur dóttir þeirra Marta sem er lærður fatahönnuður byrjað að vinna með þeim í þróun og hönnun á vörunum. „Það sem er á döfinni hjá okkur á næsta ári er að hanna nýjar vörur úr íslensku lambskinni. Við viljum endurvekja klassísku íslensku mokkavöruna sem einu sinni var svo vinsæl, eins og gærukerrupokann, mokkaskóna og jafnvel mokkakápuna.“Skinnin eru vottuð og í háum gæðaflokki./>Samhliða versluninni á Snorrabraut eru þau með verkstæði þar sem þau taka við gömlum pelsum í viðgerðir og breytingar. „Það er svo gaman þegar konur koma með pelsa sem þær hafa erft eða fengið að gjöf og við breytum þeim til að passa á nýja eigandann. Fólk er oft tilfinningalega tengt pelsinum sem oftar en ekki er frá móður eða ömmu en ef hann passar ekki á neinn þá endar hann hangandi inni í skáp árum saman. Það er oft lítið mál að breyta skinnflíkum og það er gaman að sjá konur labba út, alsælar í gamla pelsinum sem hefur öðlast nýtt líf.“ Kristín bendir enn fremur á að öllum vörum frá Feldi fylgi viðgerðarþjónusta. „Við fylgjum vörunum okkar eftir og ef eitthvað bilar þá lögum við það að kostnaðarlausu. Það er algengur misskilningur að pelsar og skinn þurfi einhverja sérstaka meðferð. Á Íslandi er ekki eins mikill raki og víða erlendis svo það þarf ekki að geyma pelsinn á neinn sérstakan hátt. Og svo segjum við alltaf: Það þarf bara að nota flíkina, þó það komi aðeins rigning eða slydda á pelsinn er það ekkert mál, jafnvel bara gott fyrir flíkina að vera viðruð. Það fer miklu betur með pels að nota hann en ef hann hangir alltaf inni í skáp.“ Kristín hlakkar til aðventunnar. „Núna er að renna í fjórðu jólin hjá okkur hér á Snorrabraut en það eru samt ansi margir sem vita ekki af okkur hér og eru hissa yfir því að hér sé verslun,“ segir Kristín. „Það er gaman að vita að fólki líkar verslunin og oftar en ekki gengur fólk héðan út með bros á vör og jafnvel með orðunum: Ég á eftir að koma hingað aftur! Það er alltaf skemmtileg stemming hjá okkur í búðinni á þessum árstíma og við viljum nota tækifærið til að bjóða öllum að líta við hjá okkur á Snorrabrautinni.“
Mest lesið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Bíó og sjónvarp Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Lífið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Hraðfréttir verða Hlaðfréttir Lífið Krakkatían: Eyðimerkur, býflugur og kjólar Lífið Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Bíó og sjónvarp Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Eins og að setja bensín á díselbíl Heilsa Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Fleiri fréttir Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum Bókaumfjöllun: Einlæg og íhugul skáldævisaga Höfundar lesa upp úr bókum sínum í beinni í kvöld Bókadómur: Þörf bók um missi Frábært gjafakort sem gleymist ekki ofan í skúffu Skautadiskó til styrktar góðu málefni Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart Bókakonfekt Forlagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld Ritdómur: Naskar mannlýsingar í misjöfnu verki Troðfull Smáralind af krökkum að fylgjast með Birgittu Bókaumfjöllun: Að hverfa í tómið Bókaumfjöllun: Kjarkmiklar og áræðnar konur Rauðvínsgljáður sviðakjammi og mysuglassúr á kleinu Höfundar lesa upp í beinni Upplifun og dýrmætar minningar í jólagjöf Bókaumfjöllun: Netflix áhrif í ljúfri jólaástarsögu Bókaumfjöllun: „Allt sem rafmagnið huldi“ Magnesíum kemur í mörgum mismunandi formum Jólaboð sem gleður og yljar á aðventunni Pantaðu sól og gleði með Úrval Útsýn Ritdómur: Gáskafull þeysireið Friðsemdar Ostaboxið frá EasyCheese hefur slegið í gegn Nýr og glæsilegur uppskriftavefur frá Nóa Síríus Ritdómur: Glæpasaga hlaðin leyndarmálum og rómans Ritdómur: Ekkert eins ljúffengt og minningin Þriggja daga veisla með Skálmöld í Hörpu Hrá upplifun í einstakri náttúruperlu Hlúa að heilsunni í infrarauðum hita í skammdeginu Óléttan breytir viðhorfum til innihaldsefna Allt í búðinni í boði - gjafabréf frá Maí stórsniðug jólagjöf Sjá meira