Hálkan heldur áfram að hrella landann Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. janúar 2018 08:04 Það er um að gera að fara varlega í umferðinni vegna hálkunnar. VÍSIR/STEFÁN
Hálkan mun líklega halda áfram að hrella landann að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands í morgun. Það er því um að gera að fara varlega í umferðinni en í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag verði hægir suðvestan vindar og él á vestanverðu landinu en léttskýjað eystra. Í kvöld og nótt er síðan von á suðaustanátt og dálítilli snjókomu eða slyddu í flestum landshlutum. „Yfirleitt frostlaust við sjávarsíðuna, en frost 1 til 12 stig inn til landsins. Hálkan heldur því líklega áfram að hrella landann enn um sinn og því um að gera að fara varlega í umferðinni,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings en veðurhorfur í dag og næstu daga eru þessar:Suðvestan og vestan 3-10 m/s og él á vestanverðu landinu, en yfirleitt léttskýjað eystra. Snýst í suðaustan 5-10 í kvöld og rigning eða slydda SV-til í nótt.Austlæg átt á morgun, 8-13 og víða dálítil snjókoma eða slydda með köflum, en úrkomulítið á V-landi. Norðlægari með kvöldinu og rofar til fyrir sunnan. Víða frostlaust við sjávarsíðuna, en frost annars 1 til 12 stig, kaldast NA-til.Á þriðjudag:Austlæg átt, 8-13 m/s og snjókoma eða slydda með köflum, en bjartviðri N-lands. Vaxandi norðlæg átt og él á annesjum fyrir norðan um kvöldið, en annars úrkomulítið. Frostlaust syðst, en annars frost, allt að 12 stigum fyrir norðan.Á miðvikudag:Norðan 8-15 m/s, hvassast á Austfjörðum. Él eða snjókoma á N-verðu landinu, en bjartviðri sunnan heiða. Frost 0 til 8 stig, minnst syðst.Á fimmtudag:Norðvestan 5-10 m/s og dálítil él NA-lands, en annars hægari, bjartviðri og talsvert frost. Vaxandi austanátt og þykknar upp síðdegis, hvassviðri eða stormur með snjókomu eða slyddu um kvöldið og hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið Hraun streymir að langmestu frá Svartsengi Innlent Sauð upp úr í morgunumferðinni Innlent Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni Innlent Það sem oftast ógildir kjörseðilinn Innlent Spákaupmenn ásælist vatn meðan fæðuöryggi sé stefnt í voða Innlent Vonast til að útkljá deilumál í fyrramálið Innlent Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Innlent Skaut þremur skotum að dróna Fiskistofu Innlent Fleiri fréttir Svik og prettir reyndust falsfréttir Hraun streymir að langmestu frá Svartsengi Það sem oftast ógildir kjörseðilinn Vonast til að útkljá deilumál í fyrramálið FB stækkar og Framsókn aftur á gröfunni Skilningsleysi fyrrverandi fjármálaráðherra um að kenna Meðferðarheimili fyrsta skrefið að þjónustuþorpi fyrir börn Skaut þremur skotum að dróna Fiskistofu Sauð upp úr í morgunumferðinni Spákaupmenn ásælist vatn meðan fæðuöryggi sé stefnt í voða Ekið á gangandi vegfaranda á Langholtsvegi Jarðakaup fjárfesta ógn við matvælaöryggi og nýtt húsnæði Stuðla Minnst þrír foreldrar verkfallsbarna hafi misst vinnuna Fundi frestað hjá kennurum en læknar funda fram á kvöld „Þetta er óhjákvæmilegur meðafli“ Þrjár sviðsmyndir í skoðun en miða við óbreyttan kjördag Nemendur fara í húsnæði KSÍ vegna rakamyndunar Stöðug virkni í eldgosinu frá því í gær Leggja til að rífa skólann því úrbætur yrðu of áhættusamar Lofaði stuðningi og uppskar stuðning kvikmyndagerðarmanna Sagðist fjárhagslegur þræll móður barnsins sem hann braut á Funda vegna slæmrar veðurspár fyrir kjördag Skemmtilegustu kappræður kosningabaráttunnar Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa Leggja til að fleiri heilbrigðisstéttir geti gefið út vottorð Tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri verknámsaðstöðu í FB Á góðri leið með að landa samningi í dag eða á morgun Komin með skýra mynd af andláti móðurinnar Um 43 prósent vilja aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu Fundu Diego heilan á húfi í heimahúsi Sjá meira