Skoðun

Fjögur prósent

Eyþór Arnalds skrifar
Almenningssamgöngur þarf að bæta á raunhæfan hátt. Alla daga lendir Strætó í umferðartöppum og töfum ekkert síður en fjölskyldubílar í Reykjavík. Forgangsakreinar létta þetta að hluta, en á meðan umferðin þyngist ár frá ári verður vandi Strætó áfram mikill.

Sú leið hefur verið farin nú í fimm ár að taka milljarð úr framkvæmdafé Vegagerðarinnar og setja hann í tilraunverkefni sem átti að skila meiri notkun á Strætó. Um 4% ferða voru með Strætó 2013 og var markmið samningsins að sú tala færi í 8% á tíu árum. Nú, fimm árum og fimm milljörðum síðar, er hlutfallið enn þá 4% og verkefnið því fallið um sjálft sig.

Þegar ég leyfði mér að benda á þessa staðreynd reyndu sumir að slá pólitískar keilur með því að halda því fram að ég hafi sett í grein að í Strætó væru „tómir vagnar“. Fóru þá margir á flug, átu hver upp eftir öðrum þótt ég hafi þetta hvergi skrifað. Það er einkenni rökþrota fólks þegar það vitnar vísvitandi ranglega í annarra manna orð. Það er einmitt svona málflutningur sem hefur fært stjórnmálin niður á svo lágt plan að almenningur ber litla sem enga virðingu fyrir stjórnmálamönnum. Við skulum horfast í augu við raunveruleikann og ræða saman út frá staðreyndum. Eingöngu þannig getum við tekist á við vandann sem fer vaxandi.

Ég vil bæta almenningssamgöngur með þeim leiðum sem eru raunhæfar og markvissar og bæta leiðakerfið. Svo er hægt að styðja við ungt fólk í strætó óháð efnahag. Það gerði ég með félögum mínum í Árborg þegar við samþykktum að leyfa grunnskólabörnum að ferðast ókeypis með strætó innan sveitarfélagsins. Þeir sem ekki hafa fengið bílpróf hafa jú engan annan kost. Þetta minnkar skutl og nýtir vagnana betur. Ennfremur er það jafnréttismál að ungt fólk komist kostnaðarlítið í íþrótta- og tómstundastarf frá heimili sínu. Kannski væri hægt að læra af þessari reynslu og ná raunhæfum árangri án þess að veðja á risalausnir fyrir tugi milljarða sem verulegar efasemdir eru um að gangi upp.

Höfundur er frambjóðandi í leiðtogakjöri Sjálfstæðisflokksins í borginni.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×