Innlent

Lögreglan biður fólk að láta vita um grunsamlegar mannaferðir

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Segja betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með slíkar tilkynningar en einu sinni of sjaldan.
Segja betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með slíkar tilkynningar en einu sinni of sjaldan. Vísir/Eyþór
Páskarnir eru fram undan og er viðbúið að margir verði á faraldsfæti. Að því tilefni minnir lögreglan fólk um að láta vita um grunsamlegar mannaferðir. Í færslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur einnig fram að fólk eigi að reyna að taka ljósmyndir ef slíkt er mögulegt og að skrifa hjá sér bílnúmer, lýsingar á fólki eða annað ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess.

„Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða, hringja jafnvel dyrabjöllunni og þykjast vera að spyrja eftir einhverjum, og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan.“

Áhersla lögð á eftirlit með íbúðarhúsnæði

Lögreglan minnir fólk ennfremur á mikilvægi þess að ganga tryggilega frá heimilum sínum, til dæmis að loka gluggum þegar það fer að heiman.

„Ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau. Sérstaklega er minnt á að útiljós séu kveikt þar sem þau eru til staðar, hvort sem um ræðir bakatil við hús eða að framanverðu.“

Slíkt gæti einfaldað nágrönnum að sjá umferð eða mannaferðir við húsin.

„Sömuleiðis er mikilvægt að fólk upplýsi ekki um fjarveru sína fyrir allra augum þegar farið er í frí, t.d. með tilkynningu á samfélagsmiðlum. Lögreglan verður með hefðbundið eftirlit um páskana, en áhersla verður lögð á að fylgjast með íbúðarhúsnæði eins og kostur er.“

Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444 1000, með einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið [email protected] Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112.

Í samtali við Vísi í dag sagði Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að margt sé hægt að gera til að verja heimili ágangi innbrotsþjófa. Nánar má lesa um það HÉR.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×