Skoðun

Loforð og lúxusíbúðir

Eyþór Arnalds skrifar
Fyrir fjórum árum var flestum ljóst að húsnæðisskortur væri í uppsiglingu. Flest sveitarfélög fóru í aðgerðir til að bregðast við vandanum með því að tryggja nægt lóðaframboð. Núverandi borgarstjóri lofaði miklu eða um 3.000 leiguíbúðum til viðbótar við íbúðir á almennum markaði. Fjórum árum síðar bólar lítið á efndum, enda var heildarfjöldi allra byggðra íbúða á síðasta ári aðeins 322 íbúðir sem er langt undir öllum markmiðum borgarinnar sjálfrar.

En hvaða áhrif hefur þetta sleifarlag haft? Þegar fasteignaverð er skoðað sést að verðið hefur hækkað um 50-60% á aðeins fjórum árum. Þessi mikla hækkun bitnar mest á þeim sem eru að reyna að kaupa sér sína fyrstu íbúð. Jafnframt lendir þessi mikla verðhækkun á þeim ekki eiga eign og þurfa að reiða sig á leigumarkaðinn.

En hvernig íbúðir hafa verið byggðar? Þegar fasteignaauglýsingarnar eru skoðaðar er algengt að sjá íbúðum lýst sem „lúxusíbúðum“. Eða jafnvel „luxury appartments“. Þetta á við um lóðir sem borgin sjálf hefur úthlutað á kjörtímabilinu. Þetta eru íbúðir með allra hæsta fasteignaverðið og gagnast því fáum.

Af hverju er þetta svona dýrt? Stærsta ástæða hækkandi verðs er skortur á eignum, en fleira kemur til. Reykjavíkurborg innheimtir gatnagerðargjald til að standa straum af kostnaði. Ofan á það er síðan lagt á byggingarréttargjald sem er orðið gríðarlega hátt í Reykjavík. Í sumum tilfellum er lagt á „innviðagjald“ sem hækkar grunnkostnaðinn enn frekar. Þá verða margir fyrir áralöngum töfum þrátt fyrir að hafa fjárfest í byggingarlóð og lendir fjármagnskostnaðurinn á lóðarhafanum. Allur þessi viðbótarkostnaður lendir á endanum á íbúðarkaupandanum og því taka margir til þess ráðs að gera út á „lúxusmarkaðinn“. Vandinn er sá að fáir hafa efni á svona dýrum íbúðum og því flytja mjög margir burt í önnur sveitarfélög.

Breytum þessu

Loforðin ein duga skammt. Efndirnar skipta öllu máli. Sú stefna sem hefur verið rekin síðustu fjögur ár hefur leitt af sér fækkun íbúa á miðsvæði Reykjavíkur og fólksflótta yfir í önnur sveitarfélög. Þeir sem flytja burt þvert á vilja sinn þurfa síðan að aka lengri vegalengdir sem aftur auka á umferðarþungann. Það er morgunljóst að það þarf að breyta um stefnu í vor. Við viljum leyfa íbúðabyggð á hagstæðari stöðum en nú er gert. Þar koma Keldur og uppbygging í Vesturbænum við Grandann í Örfirisey sterklega inn. Leggja áherslu á minni einingar fyrir þá sem vilja, en jafnframt leyfa á ný að byggja sérbýli í Reykjavík. Hætta að reyna að stýra fólki um of og veita íbúum valfrelsi um búsetu. Þannig breytum við borginni til hins betra.

Höfundur skipar 1. sæti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×