Ólafía náði sér ekki á strik á Havaí Anton Ingi Leifsson skrifar 12. apríl 2018 22:11 Ólafía náði sér ekki á strik á Havaí. vísir/afp
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, átti mun betri dag á Lotte-meistaramótinu sem spilað er á Havaí en Ólafía spilaði skelfilega í gær. Ólafía endaði á einu höggi yfir pari í dag og samtals tíu yfir. Ólafía náði sér alls ekki á strik í gær og spilaði á níu höggum yfir pari. Hún fór því snemma út í dag en vonirnar voru litlar að komast í gegnum niðurskurðinn. Hún hefur væntanlega lært mikið af hringnum í gær því í dag fékk hún alls fimmtán pör á holunum átján. Hún fékk einn fugl, á tíundu holunni, og tvo skolla, á fjórtándu og þeirri síðustu, átjándu. Samtals endar Ólafía því hringina tvo á tíu höggum yfir pari en afar, afar ólíklegt er að hún komist áfram í gegnum niðurskurðinn með þessari spilamennsku. Þar spilar hringurinn í gær mesta rullu en Ólafía spilaði á parinu í dag.
Mest lesið Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Tímabært að breyta til Handbolti Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Enski boltinn Sameinast litla bróður hjá Kolstad Handbolti Fleiri fréttir Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira