Bíó og sjónvarp

„Voru svona móment þar sem „crewið“ var ælandi eins og múkkar“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Balti á frumsýningu myndarinnar í LA í nótt.
Balti á frumsýningu myndarinnar í LA í nótt. vísir/ap
Baltasar Kormákur frumsýndi í nótt nýjustu kvikmynd sína, Adrift, í Los Angeles. Hann var nýkominn úr frumsýningarpartýinu þegar Bítið á Bylgjunni náði tali af honum í morgun og var hljóðið gott í leikstjóranum að lokinni frumsýningu.

Spurður út í hvernig viðtökurnar hefðu verið sagði hann að þær hefðu verið svakalegar.

„Þetta voru mjög tilfinningaríkar viðtökur þannig að það var mjög ánægjulegt,“ sagði Baltasar.

 

Myndin er byggð á á sönnum atburðum og segir frá þeim Tami og Richard sem ætluðu að sigla 44 feta skútu frá Tahítí til San Diego árið 1983.

Á leiðinni lentu þau í fellibylnum Raymond. Eftir að bylurinn gekk yfir vaknaði Tami í afar illa farinni skútunni og fann Richard illa meiddan. Þá tók við það erfiða verkefni að koma þeim til lands.

Myndin er að miklu tekin úti á sjó en Baltasar segist elska sjóinn og finnst frábært að vinna þar.

„Auðvitað gerir það hlutina smá erfiða. Rafmagnstæki og salt úr sjó fara ekkert rosalega vel saman þannig að það eru ýmis „challenge.“ Við vorum í sex vikur úti á sjói og það voru svona móment þar sem allt „crewið“ var ælandi eins og múkkar. En það var bara áfram með sjóinn.“

Baltasar segir að fólki finnist með ólíkindum hversu mikið af myndinni var tekið úti á sjó.

„Það er ekki bara að það virkar raunverulegra heldur líka það sem það gerir fyrir leikarana að vera í þessum aðstæðum, það gerir þá hrárri,“ segir Baltasar.

Myndin verður frumsýnd á Íslandi í júní en spurður út í næstu verkefni getur Baltasar ekki gefið mikið upp annað en að mörg spennandi verkefni séu í pípunum, bæði hér heima og úti.

„En ég var að segja nei við 100  milljón dollara mynd hjá Warner Bros um daginn því mig langar ekki inn í þá maskínu. Mig langar að gera myndir sem eru persónulegri en þetta var svona súperhetjudót eitthvað,“ segir Baltasar.

Hlusta má á viðtalið við hana úr Bítinu í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

„Ein erfiðasta kvikmynd sem ég hef gert“

„Þetta er klárlega ein erfiðasta kvikmynd sem ég hef gert. Ég hef gert þrjár virkilega erfiðar myndi, Everest, Djúpið og núna Adrift,“ segir leikstjórinn Baltasar Kormákur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.