Skoðun

Sykurmolar

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar
,,Hvað þér skynjið umhverfið á skringlegan hátt,” segir eistneski ferðalangurinn, sá sem ég hef reynt í rúman stundarfjórðung að lýsa fyrir leiðinni frá Ingólfsstræti að Nönnugötu.  ,,Þótt ég muni aldrei rata þessa flóknu leið,” segir hann, ,,hafið þér gert yðar besta til að liðsinna mér, á því er enginn vafi.”

Fundur okkar fer fram í mestu vinsemd. Ég segi honum frá dvöl minni í föðurlandi hans fyrir nokkrum árum og hann launar mér hjálpsemina og spjallið með með því að rekja fyrir mér stystu leiðina frá ráðhústorginu í Tallinn niður á ferjubryggjuna við Kirjálabotn.

Mér kom í hug þetta ljóð Braga Ólafssonar, Vegfarendur (Klínk, 1995), við lestur á kveðju sem Gerard Pokruszynski sendiherra Póllands sendi mér í Fréttablaðinu á dögunum, þar sem hann rakti meðal annars fyrir mig nokkrar greinar úr VIII. kafla Stjórnarskrár Lýðveldsins Póllands, um dómstóla.

Rétt eins og hjá vegfarendum Braga Ólafssonar fór fundur okkar Gerards á síðum Fréttablaðsins fram í mestu vinsemd. Og rétt eins eistneski ferðlangurinn finn ég mig knúinn til þess að endurgjalda Gerard hjálpsemina og frásögnina um pólsku stjórnarskránna með því að segja honum frá lögum og reglum sem gilda um skipan dómsvalds á Íslandi.

Stjórnarskrá lýðveldsins Íslands nr. 33/1944

 

2. gr.  … . Dómendur fara með dómsvaldið.

59. gr.  Skipun dómsvaldsins verður eigi ákveðin nema með lögum. 

70. gr.  [Öllum ber réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfilegs tíma fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli.



Lög um mannréttindasáttmála Evrópu nr. 62/1994





6. gr. [Réttur til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi.] 

1. Þegar kveða skal á um réttindi og skyldur manns að einkamálarétti eða um sök, sem hann er borinn um refsivert brot, skal hann eiga rétt til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar innan hæfilegs tíma fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómstóli. Sé skipan hans ákveðin með lögum.

Lög um dómstóla nr. 50/2016.

 

Ákvæði til bráðabirgða.  

IV. 

… Þegar ráðherra gerir tillögu um skipun í embætti dómara við Landsrétt í fyrsta sinn skal hann leggja tillögu sína um hverja skipun fyrir Alþingi til samþykktar. 

Og að því sögðu hvarflar hugurinn aftur til Braga Ólafssonar og orða sem Einar Örn Benediktsson gerði ódauðleg í Rokk í Reykjavík:

Það skiptir ekki máli hvað þú getur, heldur hvað þú gerir.

Höfundur er hæstaréttarlögmaður. 

 


Tengdar fréttir

Svar við grein Vilhjálms H. Vilhjálmssonar

„… ástandið í Póllandi fer hríðversnandi dag frá degi” – sungu íslenskir tónlistarmenn á níunda áratugnum og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar og bætir við: „Það berast af því fréttir að ekkert réttaröryggi sé í Póllandi og ástandið minni á einræðisríki.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×