Skoðun

Gulu vestin hennar Kolbrúnar

Helga Ingólfsdóttir skrifar
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar leiðara Fréttablaðsins síðasta mánudag og fjallar um gul vesti og kröfur VR vegna komandi kjarasamninga. Ekki ríkir mikill skilningur í grein Kolbrúnar á því mikilvæga verkefni sem hvílir á samningsaðilum að stuðla að því að lágmarkslaun dugi fyrir framfærslu þannig að velferðasamfélagið Ísland standi undir nafni sem samfélag þar einstaklingar með ólíkan bakgrunn og mismunandi getu til þess að framfleyta sér eigi möguleika á því að vera þáttakendur í samfélaginu á sínum forsendum.

Það vilja allir lifa með reisn í íslensku samfélagi sem státar af einu af toppsætunum í þjóðartekjum. Nú þegar eru margir hópar vel settir, sérstaklega þeir hópar sem náð hafa að semja um sín kjör á liðnum misserum í samræmi við úrskurð kjararáðs. Eftir sitja stórir hópar launþega með launakjör sem annað hvort duga alls ekki fyrir lágmarksframfærslu eða rétt duga til þokkalegra lífskjara. Helmingur alls launafólks er í þessum hópi og síðan má leggja til viðbótar að eldri borgarar sem ekki hafa lífeyrir úr lífeyrisjóði sem dugar til framfærslu búa margir við afar þröngan kost og öryrkjar hafa algjörlega setið á hakanum með kjarabætur vegna kerfisbreytinga sem þeir eru ósáttir við af skiljanlegum ástæðum.

Miðað við trakteringarnar sem verkalýðshreyfingin á Íslandi fær frá SA og stjórnvöldum er ekki skrýtið að umræða vakni um hvort gul vesti þurfi til þess að ná eyrum ráðamanna en síðustu mánuði hafa dunið yfir hrafallaspár um minnkandi hagvöxt og aðra óáran og sérstaklega er tekið til þess að það sé alls ekki innistæða fyrir neinum launahækkunum.

Það er ekkert aðdáunarvert við ofbeldisfull mótmæli en því verður ekki mótmælt að íbúar Parísar hafa þannig náð eyrum forseta landsins og leitt fram breytingar sem eru til hins betra fyrir borgarana. Gulu vestin eru þannig orðin tákn um aðferð til að ná eyrum stjórnvalda sem skilar árangri.

Sama krónutala fyrir alla er krafa VR

Íslenska þjóðin og þar með talið félagsmenn VR er ekki í byltingarhugleiðingum enda er það ekki hennar stíll. Hún hefur hinsvegar fengið nóg af yfirlýsingum um að svart sé hvítt og að hér muni allt fara á hvolf ef laun verði hækkuð í krónutölum um 120 þúsund á þremur árum! Sama krónutala fyrir alla er krafa VR og þannig næst að nýta það svigrúm sem er til staðar í hagkerfinu með skilvirkum hætti og allir fá sömu hækkun. Þetta er ein af meginkröfum verkalýðshreyfingarinnar og það væri gott ef miðill eins og Fréttablaðið myndi taka undir og styðja við góð markmið um betri lífskjör til handa þeim hópum sem verst eru settir í samfélaginu. Fjölmiðlar gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu og ættu að taka sér stöðu með íbúum og leggja verkalýðshreyfingunni lið með faglegri umræðu um sanngjarnar kröfur í komandi kjarasamningum.

Helga Ingólfsdóttir

Varaformaður VR


Tengdar fréttir

Gulu vestin

Það eru ýmsir sem vilja gerast alvöru mótmælendur og fara um brjótandi og bramlandi, eins og stundað hefur verið í Frakklandi síðustu vikur.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×