Stjóri Sevilla með hvítblæði Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. apríl 2019 06:00 Caparros er ekki af baki dottinn þrátt fyrir veikindin. vísir/getty
Eftir 0-2 sigur á Real Valladolid í dag greindi Joaquin Caparros, knattspyrnustjóri Sevilla, frá því að hann væri með hvítblæði. Caparros tók við Sevilla í síðasta mánuði og gerði samning út tímabilið. Hann heldur áfram sínu starfi þrátt fyrir veikindin. Þetta er annað tímabilið í röð sem stjóri Sevilla greinist með krabbamein. Argentínumaðurinn Eduardo Berizzo greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli í nóvember 2017. Mánuði síðar, eftir að hafa gengist undir aðgerð, var hann rekinn. Caparros tók einnig við Sevilla til bráðabirgða undir lok síðasta tímabils. Hann var ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu í sumar en klæddi sig aftur í þjálfaraúlpuna þegar Pablo Machín var látinn taka pokann sinn. Hinn 63 ára Caparros var áður stjóri Sevilla á árunum 2000-05. Hann hefur einnig stýrt liðum á borð við Villarreal, Deportivo La Coruna og Mallorca á löngum þjálfaraferli. Sevilla er í 5. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar, einu stigi frá Meistaradeildarsæti.
Spænski boltinn Mest lesið Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Körfubolti Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Fótbolti Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Íslenski boltinn Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Sjá meira