450 milljónir króna á ábyrgð Landsbankans [email protected] skrifar 25. apríl 2019 08:30 Valitor var dæmt til að greiða Datacell og Sunshine Press Productions 1,2 milljarða króna vegna lokunar á greiðslugátt. Landsbankinn í ábyrgð fyrir 450 milljónum af upphæðinni. Valitor segist líklega munu áfrýja dómnum.
Færsluhirðinum Valitor, dótturfélagi Arion banka, er gert að greiða Datacell og Sunshine Press Productions (SPP) 1,2 milljarða króna í skaðabætur fyrir að slíta samningi um greiðslugátt fyrirvaralaust. Landsbankinn er í ábyrgð fyrir 456 milljónum króna af upphæðinni. Dómur var kveðinn upp í gær en forsaga málsins er sú að Wikileaks tók við styrkjum í gegnum greiðslugátt sem Datacell og SPP ráku. Greiðslugáttin var opnuð 7. júlí 2011 en degi síðar sleit Valitor samningnum fyrirvaralaust. Hæstiréttur sló því föstu með dómi vorið 2013 að riftun samningsins væri ólögmæt og frá þeim tíma hafa málaferli staðið um skaðabótakröfur vegna riftunar. Dómkvaddir matsmenn mátu tjónið á 3,2 milljarða. Dómarar í málinu töldu að veikleikar væru á þeim forsendum sem tölfræðilegir útreikningar matsmanna byggðust á og því væri ekki unnt að leggja niðurstöðu matsgerðarinnar til grundvallar sem sönnunargagn um umfang tjónsins. „Samkvæmt niðurstöðu dómkvaddra matsmanna nam tjónið 3,2 milljörðum en dómarinn víkur því til hliðar og fer niður í 1,2 milljarða. Maður vonaðist nú ekki til að þeir myndu ýta matinu til hliðar. Svo erum við ekki sáttir við dráttarvextina en þetta er samt sigur,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell og Sunshine Press, í samtali við Fréttablaðið en krafa um vexti og dráttarvexti aftur í tímann kom ekki til álita. Þá hljóðaði aðalkrafa Datacell og SPP í málinu upp á 8,1 milljarð. Ábyrgist 38 prósent Ljóst er að Landsbankinn muni þurfa að greiða 456 milljónir af heildarfjárhæðinni sem Valitor var dæmt til að greiða. Ástæðan er sú að þegar Landsbankinn seldi eignarhlut sinn í Valitor til Arion banka í desember 2014 gekkst Landsbankinn í ábyrgðir fyrir 38 prósentum af þeim upphæðum sem Valitor kynni að þurfa að greiða vegna fjögurra mála. Þeirra á meðal var málarekstur Datacell og Sunshine Press Productions (SPP) gegn Valitor. Í kjölfar dómsins gaf Valitor út að málinu verði líklega áfrýjað til Landsréttar. Félagið furðaði sig á niðurstöðunni, sérstaklega varðandi SPP þar sem það hefði aldrei átt í neinu viðskiptasambandi við færsluhirðinn. Auk þess hefði SPP aldrei haft nema hverfandi tekjur en engu að síður gert margra milljarða dómskröfu á hendur fyrirtækinu. Þá benti fyrirtækið á að einn þriggja dómara hefði skilað séráliti og viljað sýkna Valitor. Í séráliti Kjartans Bjarna Björgvinssonar héraðsdómara kemur fram að hann sé sammála meirihluta dómara um að riftun samningsins hafi leitt til fjárhagslegs tjóns. Hins vegar sé hann ósammála því að skilyrði sé fyrir því að ákvarða Datacell og SPP skaðabætur að álitum. Stefnendur hafi ekki fært nægilegar sönnur á fjártjón sitt og því beri að sýkna Valitor af kröfum þeirra. Arion banki sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem fram kom að dómurinn hefði neikvæð áhrif á afkomu bankasamstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi sem nema um 600 milljónum króna að teknu tilliti til skattaáhrifa. Þessi dómur, gjaldþrot WOW air og sala bankans á eignarhlut í Farice hefðu samanlagt neikvæð áhrif sem nema um 1,2 milljörðum króna á afkomu fjórðungsins. Þá hefur dómurinn ekki áhrif á yfirstandandi söluferli Valitors að sögn bankans.
Birtist í Fréttablaðinu Íslenskir bankar Mest lesið Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Atvinnulíf EX90 sló í gegn á frumsýningu hjá Brimborg Samstarf Fengu ekki að tjá sig og sektin helminguð Neytendur Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Atvinnulíf Vona að Musk takmarki tolla Trumps Viðskipti erlent Búið að draga tennurnar úr jagúarnum Viðskipti innlent Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Atvinnulíf ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Neytendur Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Atvinnulíf Fleiri fréttir Búið að draga tennurnar úr jagúarnum First Water í hýbýli Ísfélagsins á Þorlákshöfn Knattspyrnukappi á Skaganum ráðinn fjármálastjóri Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið Hækka ekki verðtryggðu vextina „Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Mikilvægt að verja þær gjaldeyristekjur sem ferðaþjónustan aflar Kerecis fólk fjárfestir í flugi Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Opna verslanir í Kringlunni á ný Nýtt veitingasvæði rís í Smáralind Kristján ráðinn til Advania Bein útsending: Raforkuöryggi, fyrir hverja? „Grindavíkuráhrifin“ að fjara út Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“ Rannveig kveður: 124 fundir og „aldrei lognmolla“ Skýr merki um að verðbólga sé að hjaðna Ráðin framkvæmdastjórar hjá Sóltúni Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar rökstudd Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Stýrivextir halda áfram að lækka Útboð SÍ stöðvað og Intuens fagnar sigri Samtökin '78 selja slotið Allir spá lægri vöxtum Sjá meira