Skoðun

Sjálfsmyndin

Davíð Stefánsson skrifar
Dagleg orðræða vill oft einkennast af neikvæðni og átökum. Þetta á við of marga af talsmönnum einangrunar og þjóðrembu sem draga í efa nauðsyn alþjóðasamvinnu. Þeir finna sér stöðugt tilefni til að mótmæla alþjóðlegum skuldbindingum og Evrópusamvinnu.

Tilhneigingin er reyndar oft sú að væringar og óvissa á alþjóðavettvangi verði til þess að þjóðir beini sjónum sínum inn á við. Þetta þarf ekki að vera neikvætt en verður það samt oft. Óttinn rekur fólk og jafnvel þjóðir til einangrunar með tilheyrandi fordómum og heift í garð þeirra sem fylgja öðrum siðum og venjum. Þetta hafa innflytjendur víðs vegar um heim fengið að reyna, ekki síst þeir er hafa önnur trúarbrögð en heimamenn.

Þessi viðhorf ganga gegn tímans takti enda kalla áskoranir dagsins á samvinnu þjóða. Við Íslendingar erum æ meira tengdir. Misskipting auðs og valda í öðrum heimsálfum kann jafnvel að hafa áhrif á þjóðaröryggi okkar. Áskoranir varðandi upplýsingamengun og loftslagsmál eru okkar allra, svo eitthvað sé nefnt. Lífskjör þjóðarinnar verða ekki bætt án virkrar alþjóðaþátttöku og aðgangi að mörkuðum.

Það voru því góðar fréttir er bárust af niðurstöðum könnunar, sem gerð var fyrir utanríkisráðuneytið, um viðhorf Íslendinga til alþjóðasamstarfs.

Þar kemur fram að þorri Íslendinga er jákvæður í garð alþjóðastofnana og þátttöku Íslands almennt í alþjóðlegu samstarfi. Drjúgur meirihluti Íslendinga telur hagsæld landsins byggjast að miklu leyti á alþjóðlegri samvinnu, eða um 73,6 prósent. Þá telja 78,3 prósent hagsæld Íslands byggja á alþjóðaviðskiptum. Íslendingar eru sérlega jákvæðir í garð norræns samstarfs en 92 prósent landsmanna eru jákvæð gagnvart virkri þátttöku Íslands í Norðurlandasamstarfi. Þetta liggur í sameiginlegri sögu og gildum Norðurlandanna og svipaðri samfélagsgerð.

Sama gildir um þátttöku Íslands í störfum Sameinuðu þjóðanna þar sem 77,9 prósent þjóðarinnar styðja það starf. Stuðningurinn við Evrópska efnahagssvæðið var einnig afgerandi. Um 55 prósent landsmanna eru jákvæð í garð samningsins um Evrópska efnahagssvæðið en einungis 11,8 prósent eru neikvæð.

Utanríkisráðherra Guðlaugur Þór var að vonum ánægður. „Það er ánægjulegt að sjá hversu alþjóðlega sinnaðir Íslendingar eru almennt og greinilegt að flestir vilja að Ísland taki áfram virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi, sérstaklega norrænu samstarfi og á vettvangi Sameinuðu þjóðanna,“ segir hann.

Umfram allt dregur könnunin fram jákvæða sjálfsmynd þjóðar. Þetta er frjálslynd, bjartsýn og alþjóðasinnuð þjóð. Talsmenn grámósku, einangrunarhyggju og ótta við hið óþekkta kunna að vera háværir á torgum en þeir tala ekki í nafni þjóðarinnar. Hér skiptir engu þótt þeir leiði stjórnmálaflokka eða fara fyrir fjölmiðlum.

Þetta er þjóð sem þorir, vill og getur, svo vitnað sé til forsætisráðherra á þjóðhátíðardegi. Það er harla gott veganesti til framtíðar.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×