Spreðar fokking ást Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar 20. júní 2019 11:45 Hér klæðist Gummi flottum en ekki svo felulegum camouflage-jakka úr Spúútnik og æðisgengnum buxum frá Fashion Nova. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Rapparinn Guðmundur Birgir Bender hefur drungalegan stíl enda lent í ýmsu um dagana. Hann segir besta tískuráðið vera að láta fallegt bros sitt skína. „Mig langar að koma þeim boðskap á framfæri að lífið er æðislegt og þó svo að stundum komi lægðir mun það einungis gera mann sterkari,“ segir Guðmundur sem ólst upp í Grafarvogi og Grímsnesinu og er alla jafnan kallaður Gummi. Hann er rappari sem gaf út glænýtt lag í byrjun júní, Frið á jörð. Tónlistin á hug hans allan, en líka íþróttir og heimspeki, enda liggur honum margt á hjarta. „Dagsdaglega reyni ég að lifa jákvæðu lífi og hughreysta aðra. Mér finnst alltof mikið af neikvæðni í þjóðfélaginu, bæði í fjölmiðlum og tónlist þar sem allt snýst um peninga og eiturlyf. Það er bara sorglegt. Dómharka er líka ríkjandi en við ættum aldrei að dæma þá sem eru í kringum okkur því maður hefur ekki hugmynd um hvað sú manneskja hefur gengið í gegnum,“ segir Gummi sem kveðst afskaplega rólegur ungur maður en þó alltaf hress og kátur.Gummi í hvítri hettupeysu úr New Yorker með grímu frá Svíaríki.Hann yrkir alla sína texta sjálfur en lögin verða til í samstarfi við Sigga vin hans sem hann segir gera galdra. „Með tónlistarstílnum vil ég varpa ljósi á „boom bap“ hip hop-senuna. Sjálfur er ég alæta á tónlist en ástríða mín liggur í „boom bap“ og ég lít mikið upp til Forgotten Lores og Skyttanna þegar kemur að textagerð og flæði.“Stíllinn endurspegli söguna Gummi segir tískuna vera sér hugleikna. „Ég held að þannig sé það hjá nær öllum í dag og sjálfur er ég iðulega með hugann við tísku og útlit, en ég læt samt sem áður álit annarra ekki hafa neikvæð áhrif á mig.“ Stíllinn hans Gumma er að mestu sóttur í hip hop-senuna en hann er líka með blandi af því besta. „Ég vil að stíllinn minn segi mína sögu. Þótt hann geti litið drungalega út þýðir það ekki að ég sé sjálfur drungalegur enda þótt ég hafi eins og margir lent í ýmsu um ævina. Stíllinn minn segir svolítið frá því og náttúrlega líka að það þarf ekki að eyða miklum peningum til þess að líta vel út,“ segir Gummi sem fer í litrík föt og keðjur þegar hann vill slá um sig. „Mitt besta tískuráð er að vera besta útgáfan af sjálfum sér á hverjum degi og láta sitt fallega bros skína. Það á við um um alla.“Svarta jakkann keypti Gummi í New Yorker og uppáhalds buxurnar hans eru úr Fashion Nova. Skórnir eru Air Jordan.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁNEftirlætis tískuverslun Gumma er Fashion Nova og Smash, en uppáhalds flíkurnar í fataskápnum eru einmitt hvítar buxur og peysa frá Fashion Nova. „Bandaríski rapparinn Big L sálugi var mín fyrirmynd þegar kom að klæðaburði og kom mér í að klæða mig eins og ég klæði mig í dag en ég hef þá skoðun á tísku að „skinny jeans“ passi ekki við neitt. Ég nota skart og fylgihluti eftir því hvernig stuði ég er í, en ég er með átta húðflúr sem eru fagurt skart í sjálfu sér,“ útskýrir Gummi sem ilmar af Invictus og One Million angan fyrir menn. Markmið sumarsins, og reyndar framtíðarinnar, eru skýr hjá Gumma: „Það er að lifa því lífi sem ég elska og halda áfram að stefna í góða átt. Spreða fokking ást og reyna að bjarga heiminum. Gera gott á hverjum degi, taka burt neikvæðni og hjálpa þeim sem þurfa með brosi og hvatningu til að halda áfram. Lífið er þess virði að lifa. Það vantar bara fleiri verndarengla til að yfirbuga hatrið og þá verður lífið motherfucking æði.“ Hægt er að hlusta á Frið á jörð með Gumma á soundcloud.com/gummi-bender/gummi-bender-fri-j-rSvarta jakkann keypti Gummi í New Yorker og uppáhalds buxurnar hans eru úr Fashion Nova. Skórnir eru Air Jordan. FBL/STEFÁn
Birtist í Fréttablaðinu Tónlist Mest lesið Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Gagnrýni Ferðast umhverfis jörðina á 38 dögum Lífið Stjörnulífið: Sjóðheitar stjörnur í fimbulkulda Lífið Ísak og Karítas orðin foreldrar eftir bráðakeisara Lífið Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Bíó og sjónvarp Adele kveður sviðið um óákveðinn tíma Lífið Frambjóðendur stigu trylltan dans með unga fólkinu Lífið Vilt þú taka þátt í nýjum þætti á Stöð 2? Lífið Eitt fallegasta hús landsins tilbúið Lífið Hvað eru konur í framboði að hlusta á? Lífið Fleiri fréttir Heitustu tískuskvísur landsins fögnuðu Ógleymanlegt að vinna fyrir Rihönnu Flott klæddir feðgar Fagurfræði: Hvernig förðum við mismunandi húðtýpur? Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum? „Mér leið eins og alvöru prinsessu“ Sjá meira