Skoðun

Lof mér að keyra

Jóhannes Stefánsson og skrifa
Lög um leigubíla eru að fara að breytast. Ástæðan er sú að eftirlitsstofnun EFTA, sem fylgist með því að aðildarþjóðir fylgi ákvæðum EES-samningsins, gerði athugasemdir við aðgangshindranir inn á leigubílamarkað á Íslandi. Áður hafði eftirlitsstofnunin gefið út rökstutt álit um leigubílalöggjöf í Noregi og komist að þeirri niðurstöðu að lögin brytu gegn EES-samningnum. Norsku lögin eru svipuð þeim íslensku.

Barist gegn breytingum

Í núgildandi löggjöf er að finna ákvæði um hámarksfjölda þeirra sem hafa leyfi til að keyra leigubíl á Íslandi. Engin önnur atvinnugrein býr við slíkar aðgangshindranir, þótt þær megi finna í öðru formi víðar. Í nýju frumvarpi, sem byggir á tillögum starfshóps, er gert ráð fyrir að þessi múr verði felldur. Það er vel. Sömuleiðis er að finna aðrar jákvæðar breytingar í frumvarpinu.

Þar eru hins vegar einnig sjáanleg fingraför leyfishafa, sem hafa barist gegn breytingum í frjálsræðisátt. Þannig eru í frumvarpinu aðgangshindranir sem tryggja að farveitur á borð við Uber, Lyft og sambærilegar, geti ekki boðið upp á þjónustu sína hér á landi.



Fjötrar fyrir fjarveitur

Ein þessara aðgangshindrana er skylda um að í öllum leigubifreiðum skuli vera löggiltir gjaldmælar. Gjaldmælar eru tæki sem eru tengdir vél og hjólabúnaði bílsins og mæla ekna vegalengd og tíma. Mælirinn reiknar gjaldið jafnóðum þar sem hann er tengdur verðskrá. Þótt gjaldmælar þjóni sínum tilgangi eru þeir tæplega 130 ára gömul uppfinning, frá tíma þegar staðsetningarbúnaður í símum og tölvum voru vísindaskáldskapur.

Aftur á móti er gerð undantekning á þessari skyldu, enda sé þá samið um heildargjald ferðarinnar fyrir fram. Þeir sem þekkja til þjónustu farveitna vita að við pöntun á fari er gefið upp áætlað heildarverð sem er breytilegt eftir stöðu framboðs og eftirspurnar (e. surge pricing) áætlaðri vegalengd og tíma, sem aftur byggir á upplýsingum um umferð. Vegalengd og tími ferðarinnar eru ekki mæld með gjaldmæli, heldur staðsetningarbúnaði. Þrátt fyrir að áætlað heildarverð sé yfirleitt mjög nærri lagi, liggur eiginlegt heildarverð ekki fyrir fyrr en við lok ferðar. Ekki frekar en í hefðbundnum leigubíl nema á sérvöldum ferðum, eins og til og frá Keflavíkurflugvelli.



Frjálsmundar sameinist

Fleiri sambærilegar aðgangshindranir eru fyrirhugaðar í nýjum lögum. Verði frumvarpinu ekki breytt í meðförum þingsins er vandséð hvernig farveitur geti tekið þátt á íslenskum leigubílamarkaði. Ef ætlunin er virkilega að gera breytingar í þágu samfélagsins í heild, er brýnt að þessu ákvæði verði breytt. Reynum nú að láta sérhagsmuni ekki verða ofan á, fyrst við höfum tækifæri til þess.

Höfundur er lögmaður


Tengdar fréttir




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×