Skoðun

Lýðræði allra

Davíð Stefánsson skrifar
Það voru orð að sönnu hjá Sigurði Inga Jóhannssyni, ráðherra sveitarstjórnarmála, þegar hann í grein hér í blaðinu sagði sveitarfélögin gegna þýðingarmiklu hlutverki fyrir stjórnskipan landsins og lýðræði. Nýrri þingsályktun er ætlað að marka heildarstefnu um sveitarstjórnarstigið.

Sigurður Ingi sagði að sameina þurfi sveitarfélög til betri þjónustu. Í bígerð eru umbætur í opinberri stjórnsýslu til að efla sveitarstjórnarstigið sem á að að vera öflugur og sjálfbær vettvangur lýðræðislegrar starfsemi, sjálfsstjórn og ábyrgð sveitarfélaga sé virt og að sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu séu tryggð.

Undir áherslu á lýðræði tökum við flest. Lýðræðislega starfsemi sveitarfélaga er mjög mikilvæg. Þrátt fyrir það fór lítið fyrir nýlegri tilkynningu frá Hagstofunni um kosningaþátttöku í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Þar kom fram að kjörsókn þeirra sem höfðu íslenskt ríkisfang hafi verið um 69,7 prósent.

Auk Íslendinga eiga kosningarétt norrænir ríkisborgarar sem átt hafa lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag. Sama gildir um aðra erlenda ríkisborgara sem átt hafa lögheimili hér á landi í fimm ár samfellt fyrir kjördag, hafi þeir náð 18 ára aldri á kjördag og eigi skráð lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag.

Í síðustu sveitarstjórnarkosningum voru 11.680 erlendir ríkisborgarar með kosningarétt hér á landi. Þar af voru 989 frá öðrum Norðurlöndum og 10.691 frá öðrum ríkjum.

Það er sláandi að sjá að einungis 2.151 erlendur ríkisborgari hafi nýtt kosningaréttinn. Kosningaþátttaka norrænna ríkisborgara var 51,4 prósent og annarra erlendra ríkisborgara 15,3 prósent. Til að bæta gráu ofan á svart er í þessum hópi helmingi minni kjörsókn hjá aldurshópi 18-29 ára en hjá 40 ára og eldri.

Mögulegar ástæður fyrir þessari litlu þátttöku gætu verið tungumálaörðugleikar, skortur á upplýsingum eða efasemdir sem eiga rætur í upplifun kosninga í heimalandinu vegna spillingar eða annarra þátta.

Efalítið segja einhverjir að lítil þátttaka sé eðlileg því menn ætli að staldra stutt við. En fimm ár eða meira eru talsverð dvöl. Margt þessa fólks hefur dvalið langdvölum hér án þess að nýta kosningaréttinn.

Þessi litla kosningaþátttaka er vondar fréttir fyrir lýðræðislegt samfélag. Það að einungis 15,3 prósent erlendra ríkisborgara kjósi er óæskilegt.

Sístækkandi hóp innflytjenda í íslensku samfélagi verður að virkja betur. Virk þátttaka borgara úr öllum hópum samfélagsins óháð uppruna og efnahag ýtir undir frelsi og sjálfstraust, eflir viðhorf og áhrif. Það að hafa sem fæsta afskipta í samfélaginu gerir það sterkara og betra.

Næstu sveitarstjórnarkosningar verða 28. maí 2022. Þessir ríflega 1.000 dagar ættu að vera nægur tími fyrir ráðamenn sveitarfélaga til að huga að aðgerðum til aukinnar kosningaþátttöku allra. Koma svo!




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×