Skoðun

Hagsmunir

Sighvatur Arnmundsson skrifar
Umræða um varnarmál og hlutverk varnarsvæðisins í Keflavík hefur að undanförnu skotið upp kollinum. Tengist hún bæði vaxandi áhuga stórveldanna á norðurslóðum og fyrirhugaðri uppbyggingu Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Það er óhætt að taka undir hugmyndir Kolbeins Óttarssonar Proppé, þingmanns VG, um að Alþingi eigi síðasta orðið í þessum málum en hann hyggst leggja fram frumvarp þess efnis. Það getur ekki talist annað en eðlilegt að lýðræðisleg umræða eigi sér stað um þessi mál.

Utanríkisráðuneytið lét í vor framkvæma viðamikla könnun um viðhorf til utanríkismála. Almennt eru Íslendingar jákvæðir gagnvart alþjóðasamstarfi en áberandi mestur stuðningur er við norrænt samstarf. Þá er einnig mikill stuðningur við aðild að Sameinuðu þjóðunum, Mannréttindaráði SÞ og Norðurskautsráðinu. Minnstur stuðningur mælist hins vegar við varnarsamstarf Íslands við Bandaríkin. Rúm 37 prósent eru jákvæð út í samstarfið en tæp 28 prósent neikvæð og um 35 prósent hlutlaus. Stuðningur við aðild Íslands að NATO er öllu meiri en tæplega helmingur þjóðarinnar er jákvæður gagnvart henni. Tæpur þriðjungur er hlutlaust og tæpur fimmtungur er neikvæður. Samt njóta aðeins varnarsamstarf við Bandaríkin og þátttaka í starfi Alþjóðabankans minni stuðnings en aðildin að NATO af þeim tíu samstarfsvettvöngum sem spurt var um.

Þótt ekki sé meirihlutastuðningur við útgöngu úr NATO er ljóst að Íslendingar vilja fara varlega í uppbyggingu hernaðarmannvirkja. Umræða um varnarmál á Alþingi hefur frá því að herinn yfirgaf landið 2006 verið takmörkuð. Vonandi mun frumvarp Kolbeins verða tekið á dagskrá strax í haust og málefnaleg umræða fara fram um kosti og galla núverandi fyrirkomulags. Sökum herleysis mun Ísland aldrei verða fullgildur aðili að NATO í raun. Spyrja má hvort Ísland gæti náð fram sínum markmiðum í varnarmálum án fullgildrar aðildar. Það má ekki gera lítið úr nauðsyn alþjóðlegrar samvinnu í öryggis- og varnarmálum þótt ógnirnar séu aðrar en á tímum kalda stríðsins. Sífellt meiri umræða og kraftur hefur á undanförnum árum færst í norræna samvinnu á þessu sviði. Þar eigum við Íslendingar að taka þátt af fullum krafti. Finnar og Svíar eru ekki aðilar að NATO en vinna engu að síður náið með bandalaginu.

Fræg eru ummæli Henry John Temple, sem varð tvisvar forsætisráðherra Bretlands á Viktoríutímanum, um að þjóðir eigi enga varanlega vini eða bandamenn, aðeins varanlega hagsmuni. Þessi sömu ummæli hafa einnig verið höfð eftir Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Bandaríkjaher yfirgaf Ísland 2006 þrátt fyrir óskir þáverandi ríkisstjórnar um annað. Sú ákvörðun snerist um bandaríska hagsmuni sem skiljanlegt er. Þetta þarf að hafa í huga komi fram óskir frá bandarískum stjórnvöldum um enn frekari uppbyggingu hernaðarmannvirkja eða viðveru hermanna.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×