Afhroð Real Madrid í París í gær sést best á tölfræðinni Anton Ingi Leifsson skrifar 19. september 2019 11:00 Benzema yppti öxlum. vísir/getty
Real Madrid sá aldrei til sólar í gærkvöldi er liðið tapaði 3-0 fyrir PSG í stórleik gærkvöldsins í A-riðlinum. Angel Di Maria kom PSG yfir á 14. mínútu eftir sendingu Juan Bernat og Di Maria tvöfaldaði svo forystuna á 33. mínútu. Þriðja og síðasta markið skoraði Thomas Meunier eftir laglega skyndisókn í uppbótartíma en aftur var það Juan Bernat sem var arkitektinn. Leikur Real var ekki upp á marga fiska og það kemur bersýnilega í ljós þegar litið er á tölfræðina úr leiknum. Madrídarliðið átti ekki skot á markið í leiknum en það er í fyrsta skipti sem það gerist síðan tímabilið 2003/2004. Þeir hafa síðan þá spilað 167 Meistaradeildarleiki. Þetta er einnig í fyrst skipti síðan 2013 sem Real Madrid tapar tveimur leikjum í röð í Meistaradeildinni en þeir töpuðu gegn Ajax á síðustu leiktíð í 16-liða úrslitunum. Þeir hafa svo aldrei tapað svona stórt í 1. umferð Meistaradeildarinnar svo það er ljóst að pressan er orðinn enn meiri á Zinedine Zidane, stjóra Real Madrid.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Tólf leikmenn komnir til KR Íslenski boltinn Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Fleiri fréttir Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Sjá meira