Hótaði að berja tvo lögreglumenn og sagðist hlakka til að hitta annan þeirra í dimmu húsasundi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. september 2019 18:30 Maðurinn var handtekinn eftir að hann ók á umferðarljós. Vísir/vilhelm
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir umferðarlagabrot og brot gegn valdstjórninni. Maðurinn var handtekinn fyrir ölvunarakstur 11. maí 2015 og hótaði hann lögreglumönnum á lögreglustöðunni á Grensásvegi ofbeldi. Dómsmálið á hendur manninum verður tekið fyrir þann 10. október næstkomandi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í ákæru sem gefin var út vegna málsins segir að maðurinn hafi ekið á umferðarljós með biðskyldumerki á gatnamótum Fjallkonuvegar og Gullinbrúar. Umferðarljósið skemmdist en maðurinn ók á brott án þess að nema staðar eða tilkynna lögreglu um brotið. Maðurinn var handtekinn skömmu síðar og í ljós kom að hann var undir áhrifum áfengis en vínandamagn hans mældist 2,85 prómill en á þessum tíma var leyfilegt vínandamagn ökumanna 0,5 prómill. Eitthvað virðist maðurinn hafa verið ósáttur við handtökuna en eftir að hann var færður á lögreglustöðina við Grensáveg hótaði hann tveimur lögreglumönnum ofbeldi. Sagðist hann hlakka til að hitta annan þeirra í dimmu húsasundi og hótaði hann því að berja báða lögreglumenn.
Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Innlent Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Erlent Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Innlent Tvær á toppnum Innlent Fleiri fréttir Segja allt of mikið gert úr hneykslismálum stjórnmálamanna Súðavíkurnefnd skipuð og hefur ár til að skila niðurstöðum Meirihluti aukinna ríkisútgjalda farið í laun og bætur Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sjá meira