Skoðun

Heimurinn er að minnka!

Kristbjörg Ólafsdóttir skrifar
Eitt af því sem ég dýrka við Internetið er hvað það hefur minnkað þessa litlu/stóru veröld okkar. Fyrir ekkert svo mörgum árum síðan, reyndar alveg ótrúlega stutt síðan, að ef maður vildi fá fréttir þá voru bréfaskriftir eina leiðin.

Núna tökum við upp gemsann okkar og face time-um einhvern sem er þess vegna hinum megin á hnettinum. Þegar börnin mín verða fullorðin, í hvernig heimi munu þau lifa í? Amma mín ólst upp í torfbæ, í hvernig heimi munu barnabörnin mín lifa í?

Eitt af því sem mér hefur fundist dásamlegt við þessa þróun er tækifærið til að kynnast öðrum menningarheimum. Síðastliðin þrjú ár þá höfum við verið með erlenda barnapíur, hálfgert au pair. Ekki það að við höfðum eitthvað á móti þessum íslensku, alls ekki, en ég vildi gefa krökkunum mínum tækifæri til að sjá heiminn okkar (Ísland) með augum einhvers sem var ekki vanur því að forsetinn geti gengið um óáreittur og án þess að vera með lífverði á hægri og vinstri hönd.

Sem eitt lítið dæmi þá var barnapían okkar sl. sumar frá Chile. Fyrsta daginn sem hann var að passa þá fer sonur minn (8 ára) út að leika með vinum sínum og á meðan hringir barnapían í mömmu sína úti í Chile. Hún fékk algjört áfall þegar sonur hennar sagði að barnið sem hann ætti að vera að passa væri bara eitt úti, það gæti eitthvað komið fyrir. Hann (barnapían) þurfti virkilega að sannfæra mömmu sína um að þetta væri allt í lagi, hann væri öruggur, börn hérna á Íslandi væru örugg. Þetta virkilega opnað augun mín, það er svo margt sem við tökum fyrir sem sjálfsagt, en er í raun forréttindi.

Ég vona að þessi „minni heimur“ sem við lifum í núna verði til þess að auka víðsýni, að fólk gerir sér grein fyrir því að við erum öll eins. Núna í sumar yfir smá tímabil þá vorum við 6 í heimili, ekkert merkilegt við það, en það sem er merkilegt er að við vorum frá 5 mismunandi löndum. Ég og maðurinn minn fædd á Íslandi, börnin mín tvö bæði ættleidd frá sitt hvoru landinu, barnapían mín frá Chile og svo skiptineminn okkar, bónusdóttir mín, frá Tælandi.

Þannig að, verið óhrædd við að kynnast nýju fólki, nýjum hlutum. Heimurinn er svo dásamlegur og ótrúlega spennandi og hreinlega bíður eftir þér að vera uppgötvaður. Og mundu, ef þú fléttir aldrei blaðsíðunni, þá kemstu ekkert áfram með bókina.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×