Lífið

Kostir kisujóga miklir

Björk Eiðsdóttir skrifar
Jóhanna Ása, rekstrarstjóri Kattholts, segir fleiri viðburði í farvatninu hjá Kattholti.
Jóhanna Ása, rekstrarstjóri Kattholts, segir fleiri viðburði í farvatninu hjá Kattholti. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Í byrjun mánaðar var haldinn í Kattholti fyrsti kisujógatíminn hér á landi og féll hann svo vel í kramið að leikurinn verður endurtekinn næsta laugardag og er þegar að verða uppselt.

Jóhanna Ása Evensen, rekstrarstjóri Kattholts, segir hugmyndina hafa komið frá víðförlum og reynslumiklum starfsmanni Kattholts, Önnu Katrínu.

„Hún hefur m.a. unnið í kisuathvarfi í Amsterdam og datt í hug að byrja með kisujóga þegar hún og jógakennarinn sem stendur að tímanum, Jóna Dögg Sveinbjörnsdóttir, voru í rauðvínsjóga á dögunum. Í Amsterdam kynntist hún einmitt kisujóga og kisubíói og er stefnan tekin á fleiri kisuviðburði á næstunni. Við stefnum á að halda kisubíó í nóvember eða desember að ógleymdum jólabasar Kattholts sem verður í húsakynnum Kattholts, Stangarhyl 2, laugardaginn 30. nóvember. Svo verður stefnan tekin á fleiri kisujógatíma eftir áramót.“

Kisur labba á milli jógagesta og fá klapp og knús

„Kisujógað fer þannig fram að þátttakendur gera jógaæfingar eftir handleiðslu kennarans og á meðan eru kisurnar frjálsar á gólfinu og labba á milli jógagesta og biðja um klapp og knús. Kostirnir eru miklir, þar sem rannsóknir hafa margoft sýnt fram á að umgengni við dýr eykur tilfinningalega og líkamlega vellíðan.“ 

Hanna og Anna, starfskonur Kattholts, með kisur sem taka þátt í jóganu.
Aðspurð segir Hanna þátttakendur hafa verið í skýjunum og viljað vita hvenær næsti jógatími yrði. 

„Kisurnar voru þreyttar en glaðar eftir að hafa borðað nammi úr höndum jógagesta nær allan tímann.“

Allur ágóði fer í starf Kattholts

Jógakennarinn Jóna Dögg Sveinbjörnsdóttir er með margþætt jógakennararéttindi og gefur Kattholti vinnu sína svo allur ágóðinn fer til styrktar starfsins þar en hver og einn þátttakandi greiðir 3.500 krónur fyrir tímann. Aðspurð hvað sé að frétta úr holti kattanna svarar Hanna: „Það er allt gott að frétta héðan úr Kattholti. Vel gengur að finna ný heimili fyrir kisur í heimilisleit og þeim kisum sem gista nú á Hótel Kattholti líður með eindæmum vel!



Færri komust að en vildu

Næsta kisujóga verður kl. 13 og svo kl. 14.30 nk. laugardag, 19. október. Nokkur pláss eru enn laus. Síðast komust færri að en vildu. Hægt er að bóka pláss með því að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í síma 567-2909 milli 9 og 16.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.