Skoðun

Plast vegur þyngra en fiskar

Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar
Vissir þú að 8,3 milljarðar tonna af plasti hafa verið framleiddir síðan plast var fyrst kynnt til sögunnar um miðja síðustu öld? Rúmlega 90% af því plasti sem er framleitt, er ekki endurunnið og það tekur plast mörg hundruð og jafnvel þúsundir ára að brotna niður.

Á hverju ári fara a.m.k. 8 milljónir tonna af plasti í hafið. Það jafngildir því að tæma fullan farm af vörubíl í sjóinn á hverri mínútu. Áætlað er að þettta magn aukist í tvo vörubíla á mínútu árið 2030 og fjögur hlöss á mínútu árið 2050.

Ef plastmengun verður ekki stöðvuð, mun plast í hafinu vega meira en allir fiskarnir í sama sjó árið 2050. Íslendingar eiga mikið undir í sjávarútvegi og ferðaþjónustu með ósnortna náttúru í forgrunni og nú ógnar þessi þróun afkomu okkar og velferð. Mikilvægt er að hver þjóð verði sjálfbær með sínu hringrásarhagkerfi og við sem þjóð þurfum að tryggja að þessi mál séu eins og best verður á kosið.

Fimmtudaginn 17. október stendur FENÚR – fagráð um endurnýtingu og úrgang - fyrir ráðstefnu þar sem umfjöllunarefnið verður plast. Hver er staðan og hvert stefnum við sem þjóð? Einn helsti sérfræðingur í málefnum plasts, Paul Rendle-Barnes, verður sérstakur gestur á ráðstefnunni en hann þekkir vel til þessara mála. Hann hefur mikla þekkingu á því hvað er að gerast á alþjóðlegum vettvangi og hefur m.a. verið ráðgjafi skosku ríkisstjórnarinnar í þessum málum.

Hvað erum við að gera við plastið og hvaða leiðir eru í boði? Stöndum við Íslendingar okkur vel þegar kemur að umhverfis- og úrgangsmálum. Er einhver nýsköpun í gangi? Er urðunarskattur góð hugmynd? Hvað er atvinnulífið að gera, hvað segja stjórnvöld og hvar liggja tækifærin? Þessum spurningum og miklu fleirum ætlum við að reyna að svara á ráðstefnu FENÚR þann 17. október milli kl.13.00 – 17.00 á Hótel Örk í Hveragerði. Skráning á [email protected].

Vertu með!

Höfundur er framkvæmdastjóri FENÚR.




Skoðun

Sjá meira


×