Innlent

Lögregla vill ná tali af tveimur mönnum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Annar maðurinn sem lögregla vill ná tali af er hér merktur með tölustafnum 1 og hinn með tölustafnum 2.
Annar maðurinn sem lögregla vill ná tali af er hér merktur með tölustafnum 1 og hinn með tölustafnum 2. Mynd/lögregla
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.

Mennirnir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 4441000.

„Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Þá er tekið fram að þó að myndirnar séu óskýrar megi ætla að þær geti gefið vísbendingar um hverjir mennirnir eru. Á myndunum, sem bárust frá lögreglu og virðast samsettar, er annar maðurinn merktur með tölustafnum 1 og hinn með tölustafnum 2.

Annar maðurinn sem lögregla vill ná tali af.Mynd/lögregla



Fleiri fréttir

Sjá meira


×