Innlent

Lögreglan óskar að ná tali af tveimur mönnum

Atli Ísleifsson skrifar
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að mennirnir séu vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hafa samband við lögregluna í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Uppfært: Mennirnir hafa gefið sig fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×