Guðrún Brá vann eftir sex holu bráðabana Sindri Sverrisson skrifar 17. maí 2020 21:53 Andri Þór Björnsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eftir sigurinn í dag. MYND/GOLF.IS
Guðrún Brá Björgvinsdóttir fagnaði sigri á fyrsta golfmóti ársins hér á landi þegar hún hafði betur gegn Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur eftir sex holu bráðabana á ÍSAM-mótinu í Mosfellsbæ. Guðrún var með tveggja högga forystu fyrir þriðja og síðasta hringinn á mótinu í dag en Ólafía náði að jafna við hana með því að fá fjóra fugla á síðustu níu holum mótsins. Þar með voru þær hvor um sig á samtals -2 höggum eftir þrjá hringi og því þurfti að grípa til bráðabana sem eins og áður segir dróst talsvert á langinn. Ólafía og Guðrún voru í sérflokki á mótinu en Ragnhildur Kristinsdóttir varð í 3. sæti á +10 höggum og Valdís Þóra Jónsdóttir í 4. sæti á +12 höggum. Öll úrslit má sjá hér. Fyrr í kvöld fagnaði Andri Þór Björnsson sigri í karlaflokki eftir jafna keppni og mikla spennu.
Golf Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira