Golf

Tækifæri til að læra af þeim bestu

Svava Kristín Gretarsdóttir skrifar
Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir býður upp á golfkennslu á sunnudaginn ásamt öðrum íslenskum atvinnukylfingum.
Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir býður upp á golfkennslu á sunnudaginn ásamt öðrum íslenskum atvinnukylfingum. mynd/gsí

Íslenskum kylfingum býðst tækifæri á að æfa golf með atvinnukylfingum landsins. Í tilefni þess að allir atvinnukylfingar okkar eru staddir hér á landi ætla þeir að bjóða uppá þriggja tíma æfingu á sunnudaginn 14. júní hjá Golfklúbbi GKG.

Aðeins 40 sæti eru í boði og geta þátttakendur fengið persónulega golfkennslu til að styrkja sinn leik fyrir sumarið en það verða að hámarki fjórir þátttakendur fyrir hvern atvinnukylfing.

„Þetta er einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja koma og bæta sig og fá kennslu frá okkur,“ sagði Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir.

Auk hennar taka atvinnukylfingarnir Andri Þór Björnsson, Axel Bóasson, Berglind Björnsdóttir, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Ólafur Björn Loftsson, Ragnar Már Garðarsson og Rúnar Arnórsson.

Þeim sem vilja fá frekari upplýsingar er bent á að senda tölvupóst á [email protected].

Klippa: Gefst tækifæri til að læra af atvinnukylfingunum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×